bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Miðstöðvarvandamál , vatnslás? E36 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=33827 |
Page 1 of 1 |
Author: | Brútus [ Fri 19. Dec 2008 20:30 ] |
Post subject: | Miðstöðvarvandamál , vatnslás? E36 |
Það er kalt úti. Frekar pirrandi. Ég vakna á morgnanna. Set bílinn í gang og þegar að hann er búinn að hita sig fer ég að finna heitan blástur. Bíllinn er mjög mislengi að hita sig. En . . . ef að ég tek fótinn af bensíngjöfinni í svolitla stund þá er hann mjög fljótur að gefa mér jökulkaldan blástur. Þannig að í grófum dráttum. *heitur blástur viðhelst ekki nema að stutt sé á bensíngjöf. *Bíllinn á það til að vera mjög lengi að hita sig í frosti. *ég gef bílnum aldrei fasta inngjöf fyrr en hann er orðinn heitur. |
Author: | maxel [ Fri 19. Dec 2008 20:32 ] |
Post subject: | |
Það vantar kælivökva á hann |
Author: | Bui [ Fri 19. Dec 2008 21:58 ] |
Post subject: | |
loft a vatnkassa lenti i þessu um daginn, og lika það sem maxel segir |
Author: | Zed III [ Sat 20. Dec 2008 07:30 ] |
Post subject: | |
þetta er líklega loft á kerfinu. Tékkaðu á þessum þræði: http://forums.bimmerforums.com/forum/sh ... p?t=683553 Þarna er lýsingar á leiðum til að losna við loftið. |
Author: | Brútus [ Sat 20. Dec 2008 20:24 ] |
Post subject: | |
maxel wrote: Það vantar kælivökva á hann
Takk fyrir. Þetta var einmitt það sem sagt var við mig fyrst. Ég lét athuga það mál og það var ekki það sem var að valda þessu. DrWho og bui . . Takk kærlega ,ég fer í að tjekka á því. |
Author: | Höfuðpaurinn [ Mon 22. Dec 2008 10:31 ] |
Post subject: | |
það er pottþétt loft á kerfinu hjá þér, ég lenti í þessu í fyrra og það lýsti sér á sama hátt. Lýsing á því hvernig ég lagaði þetta: Tekur tappann af forðabúrinu á vatnskassanum og litlu plastskrúfuna við hliðina á, fyllir á þar tel fer að flæða uppúr öllu, setur skrúfuna í og notar svo stutta slöngu og fjarlægir umfram kælivatn úr forðabúrinu (max strikið var ca fyrir miðju ef ég man rétt), tappinn á forðabúrið and you're done. |
Author: | Zed III [ Mon 22. Dec 2008 10:34 ] |
Post subject: | |
Höfuðpaurinn wrote: það er pottþétt loft á kerfinu hjá þér, ég lenti í þessu í fyrra og það lýsti sér á sama hátt.
Lýsing á því hvernig ég lagaði þetta: Tekur tappann af forðabúrinu á vatnskassanum og litlu plastskrúfuna við hliðina á, fyllir á þar tel fer að flæða uppúr öllu, setur skrúfuna í og notar svo stutta slöngu og fjarlægir umfram kælivatn úr forðabúrinu (max strikið var ca fyrir miðju ef ég man rétt), tappinn á forðabúrið and you're done. Ég hef séð mælt með að "mjólka" slöngurnar (þ.e. kreista til skiptis slöngurnar) við ventilinn meðan þetta er opið til að ná mögulegum lofttappa úr kerfinu. |
Author: | crashed [ Sun 04. Jan 2009 16:18 ] |
Post subject: | |
lenti í þessu með minn e36 líka og loft tæmdi hann og allskonar vesen skyfti um vatslás og viftuspaða og vatnsdælu enn alltaf var hann eins en svo kíkti ég á einhvern vatsventil sem er við kvalbakin á bílnum á vatnslaungunum sem fara inní miðstöðina og þá var hann óteingdur og ég teingdi hann og þá fór allt að virka eðlilega |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |