Page 1 of 2

Bakkljós sem kviknar ekki í e36/7

PostPosted: Thu 18. Dec 2008 09:09
by Zed III
daginn,

Ef bakkljósið kviknar ekki og perurnar eru í lagi er nokkuð annað sem klemur til greina en bakkljósaskynjarinn.

Kassinn (og þar með skynjarinn) komu úr 325i bíl og restin er z3.

PostPosted: Thu 18. Dec 2008 09:54
by moog
Finnst líklegasta orsökin bakkljósaskynjarinn. Hef 2svar þurft að skipta honum út á 325i E36 bílum sem ég hef átt.

PostPosted: Thu 18. Dec 2008 10:58
by Zed III
cheers,

Þá er bara að panta slíkan

PostPosted: Fri 19. Dec 2008 01:12
by Misdo
getur verið að perustæðið sé brunnið eða sambandsleysi í því

PostPosted: Fri 19. Dec 2008 12:38
by Zed III
Misdo wrote:getur verið að perustæðið sé brunnið eða sambandsleysi í því


best að kíkja á þetta áður en ég panta.

Vitið þið hvort það sé hægt að leiða framhjá skynjaranum til að kveikja ljós?

PostPosted: Fri 19. Dec 2008 13:06
by jens
Aftengir undir bílnum og tengir endana saman, þá ættir þú að fá ljós til að ganga úr skugga um að perustæðið sé heilt.

PostPosted: Fri 19. Dec 2008 13:24
by Einarsss
jens wrote:Aftengir undir bílnum og tengir endana saman, þá ættir þú að fá ljós til að ganga úr skugga um að perustæðið sé heilt.


eða setur í bakk og mæltir hvort það komi straumur á perustæðið

PostPosted: Fri 19. Dec 2008 13:59
by Zed III
takk allir,

Ég ætti að vera með allt sem þarf til að greina þetta eftir svörinn ykkar.

PostPosted: Fri 19. Dec 2008 21:42
by Lindemann
Best er að byrja á því að fara með prufulampa í perustæðið til að sjá hvort það komi straumur þar. Ef ekki þá er næst að athuga hvort rofinn sé í lagi.
með því að leiða vírana saman í tenginu sér maður hvort rofinn sé ónýtur.....

Ef öryggið er í lagi, rofinn í lagi og enginn straumur afturí, þá eru sennilega skemmdar leiðslur. Líklegast í kringum gírkassann eða við afturljósin.

PostPosted: Sat 20. Dec 2008 00:16
by JaguarXJ6
ég er með sama vandamálið þ.e. bakkljósin virka ekki, en er búin að skipta um bakkljósarofann, en það er plug undir miðjustokknum hjá mér sem er tengt í gult stykki sem er sennilega úr sjálfskiptingu, en þegar ég tek það úr sambandi vill bíllinn ekki starta sér,

treysti mér ekki sjálfur að grúska eitthvað í þessu :oops:, bílinn fór svona í gegnum skoðun :lol:

PostPosted: Sat 20. Dec 2008 14:17
by Einari
þetta gula stykki í pluginu undir miðjustokknum er þá að öllum líkindum til að láta tölvuna halda að bíllinn sé í park. og hann startar ekki nema að hann sé í park :wink:

PostPosted: Sat 20. Dec 2008 19:26
by Alpina
Settirðu örugglega í ,,,,,,, bakkgír :shock:


:squint: :squint: :squint: :squint: :squint:

PostPosted: Fri 23. Jan 2009 21:58
by Zed III
komst að því að það eru amk tveir hlutir að þessu, annarsvegar er skynjarinn kapútt og svo virðist vanta pluggið á hann þar sem ég sé ekkert plugg í kringum bílinn.

Veit einhver í hvaða átt leiðslan sem fer frá skynjaranum liggur, fer þetta afturút bílnum eða upp í boddíið ....

PostPosted: Fri 23. Jan 2009 22:39
by GunniT
DrWho wrote:komst að því að það eru amk tveir hlutir að þessu, annarsvegar er skynjarinn kapútt og svo virðist vanta pluggið á hann þar sem ég sé ekkert plugg í kringum bílinn.

Veit einhver í hvaða átt leiðslan sem fer frá skynjaranum liggur, fer þetta afturút bílnum eða upp í boddíið ....


Fer upp að gírstöngini og á að vera plögg þar á móti..

PostPosted: Sat 24. Jan 2009 21:21
by Zed III
Takk GunniT

Það er ekkert plögg sjáanlegt þarna og ekkert sem fer upp með gírstönginni, en ég sá á annari síðu að maður ætti að geta séð þetta koma þar upp með því að taka hnúðinn og leðrið af. Spurning hvort þetta hafið gleymst í stóra vélaswappinu 2008...

Svo ég sé með þetta á hreinu, er þetta ekki bara stutt leiðsla sem fer frá skynjaranum, upp með gírstönginni, upp hjá gúmmíinu og plöggast þar í annað plögg (sem ég ætti að geta fundið með því að opna miðjustokkin betur ?