Page 1 of 1
Mótorswap og hlutir tengdir því

Posted:
Tue 09. Dec 2008 23:32
by Mánisnær
Jæja núna vonandi í næstu viku fer mótorinn úr 535 og annar ofan í, og fyrst ég er að standa í þessu þá var ég að velta því fyrir mér hvort ég ætti að skipta um eitthvað í mótornum eða kassanum?
Mér var bent á að kíkja á pakkdósir á kassanum og leguna framan á honum (throw out bearing??)
Og einnig að það væri sniðugt að skipta um kúplingu, en að ég kæmist kannski upp með að skipta bara um diskinn.
Hvað ætti ég að kíkja á
Bíllinn er ekinn 187.000km, og mótorinn sem er að fara ofan í hann 130.000.
Kv.
Máni

Posted:
Tue 09. Dec 2008 23:42
by saemi
Hvernig standi er mótorinn sem fer ofan í ? Er áfast heddið eða laust?
definately að skipta um pakkdós aftan á vélinni hvernig sem ástandi er.
Ef þú getur startað vélinni áður en þú setur hana í þinn (ef hún er enn í bíl) athuga hvort olíuljósið er lengi að fara. Ef svo er, þá skipta um olíudælu.
Væri fínt að kíkja á legurnar á sveifarásnum, en ekkert möst.
Ef heddið er laust þá er spurning um að fara í það.
Þetta er allt spurning um $$$, nema pakkdósin.
Þú sérð ástandið á pressunni og kúplingunni. Ég myndi að vísu skipta um kúplingslegu.

Posted:
Wed 10. Dec 2008 00:17
by maxel
Seldann bara


Posted:
Wed 10. Dec 2008 00:32
by Mánisnær
saemi wrote:Hvernig standi er mótorinn sem fer ofan í ? Er áfast heddið eða laust?
definately að skipta um pakkdós aftan á vélinni hvernig sem ástandi er.
Ef þú getur startað vélinni áður en þú setur hana í þinn (ef hún er enn í bíl) athuga hvort olíuljósið er lengi að fara. Ef svo er, þá skipta um olíudælu.
Væri fínt að kíkja á legurnar á sveifarásnum, en ekkert möst.
Ef heddið er laust þá er spurning um að fara í það.
Þetta er allt spurning um $$$, nema pakkdósin.
Þú sérð ástandið á pressunni og kúplingunni. Ég myndi að vísu skipta um kúplingslegu.
Fæ ég ekki kúplingslegu og pakkdósir á þetta í B&L?
Heddið er fast á, mótorinn er í bíl.

Posted:
Wed 10. Dec 2008 00:36
by sh4rk
Færð örugglega kúplingsleguna í fálkanum eða jafnvel kúplingssetta á ekkert svo svakalega mikið

Posted:
Wed 10. Dec 2008 00:48
by srr
Það var sérpantað fyrir mig kúplingssett í TB fyrir einu og hálfu ári.
Sachs sett kom í gegnum Schiedmann.
Kostaði 23.000 kr ÞÁ.
Mig grunar að það sé til ennþá....ekki beint mikið til af late m30b35.
Ég þurfti að skila því sökum þess að ég ákvað að nota single mass flywheel í stað dual mass.

Posted:
Wed 10. Dec 2008 02:54
by Mánisnær
Ég kanna þetta á morgun
