Page 1 of 1

E36 útvarpsvandamál, lélegt samband

PostPosted: Mon 08. Dec 2008 21:32
by KanDoo
Sælir,

Já þannig er mál með vexti að útvarpið mitt virðist ekki ná góðu sambandi.
næ T.d ekki Xinu og er með mjög lélegt samband í aðrar stöðvar.

Kanski einhver hér sem gétur verið svo vænn að benda mér á vandamálið

Takk

PostPosted: Mon 08. Dec 2008 22:01
by asgeirholm
Ef það er ekki loftnet á bílnum þínum þá er það innbygt í afturrúðuna á E36 og er það algengt vandamál að það sé sambandsleysi í henni, það er ekkert mál að renna með bílinn á eitthvað verkstæði eins og Nes-radio og þeir ættu að kippa þessu í lag, er víst bara eitthvað plög, það var maður sem gerði þetta fyrir mig hérna í Keflavík og hann rukkaði um 5.000 kr.

PostPosted: Tue 09. Dec 2008 02:51
by Angelic0-
kemur stöku sinnum fyrir að magnararnir sitthvorumegin í rúðunni klikka ;)

PostPosted: Tue 09. Dec 2008 15:22
by Mr_Gold
eg lenti í þessu líka hjá mer.. þa hafði loftnetstengið aftan á útvarpinu dottið úr.. en svo er þetta með aftur rúðuna

PostPosted: Wed 24. Dec 2008 00:37
by Dóri-
Er líka með svona vandamál í 323i, hann er með loftnetið í afturrúðunni, í loftnetsmagnarann fer vír, hvaðan fær sá vír rafmagn?!
Er ekki með orginal spilara, svo er búið að mixa einhvern magnara, getur ekki skemmt eitthvað að vera með tvo magnara?

Svolítið leiðinlegt að vera með HiFi og geta ekkert notað það :oops:

PostPosted: Wed 24. Dec 2008 00:57
by aronjarl
ef þú ert með aftermaket xenon kerfi þá hafa þau verið að trufla FM tíðni.


Annars er þetta líklega loftnetið.


Kv.

PostPosted: Wed 24. Dec 2008 03:18
by Dóri-
aronjarl wrote:ef þú ert með aftermaket xenon kerfi þá hafa þau verið að trufla FM tíðni.


Annars er þetta líklega loftnetið.


Kv.


Já, það hefur líklegast ekki verið tengt hvíta vírinn sem fer í loftnetsmagnarann úr swissstraum.

PostPosted: Sun 28. Dec 2008 01:05
by saemi
Ég breytti aðeins fyrirsögninni þinni. Nánari skýring er vænlegri til árangurs ;)