bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Smádót í E36, vantar aðstoð
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=33471
Page 1 of 1

Author:  maxel [ Thu 04. Dec 2008 02:48 ]
Post subject:  Smádót í E36, vantar aðstoð

Sælir, vinur minn á E36 (4 dyra) garm sem er með smá leiðindi.

Hægri framrúða er eitthvað leiðinlegt, upphalarinn fer alltaf í rugl þegar maður skrúfar upp (rafmagnsrúður). Maður þarf að stýra glerinu svo það læsist ekki og mögulega mölvist.

Upphalarinn virðist ekki boginn en það er eins og það sé dáldið slag í honum.
Er þetta stillingar atriði? Þetta er hnoðað í og maður vildi helst losna við að vera skipta um þetta.

Svo er það að það er ekki hægt að læsa bílnum innanfrá í bílstjórasætinu. Allar samlæsingarvirka og hægt er að læsa utanfrá en það virkar ekkert að hreyfa tittinn innan frá upp og niður... bílstjórahurðinn læsist ekki einu sinni.

Einhverjar ábendingar?

Author:  Angelic0- [ Thu 04. Dec 2008 02:56 ]
Post subject: 

ertu búinn að kanna með kubbana í sleðunum...

skrúfar rúðuna í neðstu stöðu með hurðarspjaldið af...

þá sérðu tvo hvíta plastkubba.. þetta er algengasta bullið...

easy fix...

Author:  maxel [ Thu 04. Dec 2008 03:02 ]
Post subject: 

Ég var búin að taka hurðarspjaldið af já.
Ég finn ekki mynd af þessu á bmwfans.info

Author:  Bandit79 [ Thu 04. Dec 2008 11:52 ]
Post subject: 

bílinn hans Atla ?

Author:  maxel [ Thu 04. Dec 2008 14:44 ]
Post subject: 

Bandit79 wrote:
bílinn hans Atla ?

Nei

Author:  ömmudriver [ Thu 04. Dec 2008 22:53 ]
Post subject: 

Svo átt þú ekki að geta læst bílstjórahurðinni innan frá með því að ýta pinnanum niður í öllum helstu BMW :wink:

Author:  crashed [ Sun 04. Jan 2009 16:29 ]
Post subject: 

var sama vandamál hjá mér með rúðuna og ég keyfti mér nýjann gúmílista í kryngum rúðuna og þá fór hún að virka eins og húnn áti að gera. með samlæsingarnar að þá er þetta fullt af skynjurum og drasli sem var allt bilað hjá mér og ég fékk mér bara þjófavarnar kerfi og beinteingdi mótorana við það og það virkar fínt hehe

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/