bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Xenon
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=33391
Page 1 of 1

Author:  clarkson [ Mon 01. Dec 2008 12:35 ]
Post subject:  Xenon

hef heyrt dálítið um þetta, er með Xenon í "venjulegu" ljósunum, en hef séð Xenon angel eyes, og mig langar í svoleiðis ... strákar/stelpur, vitið þið hvar hægt er að nálgast svoleiðis búnað hérna á landinu?

já og Xenon þokuljós (kastarar) ... þarf sérstakann búnað í það eða getur maður bara smellt perunni í og verið svalari en Snoop Dogg?

Author:  Bui [ Mon 01. Dec 2008 12:44 ]
Post subject: 

getur keypt þétta af 3000gt á live2cruize hann er að selja svona "xenon" kit með mismunandi styrkleika, annars geturu keypt einhver wannaB blá ljós og sett í en kemur ekki einsflott út, kitið kostar frá 12000 upp í 15000

leiðréttið mig ef eg er að fara með rangt mál

Author:  Tommi Camaro [ Mon 01. Dec 2008 16:19 ]
Post subject: 

bara snilld að verzla við þennan 3000gt ´spjallinu, ef það er eitthvað vezen þá reddar hann því bara

Author:  clarkson [ Tue 02. Dec 2008 19:32 ]
Post subject: 

flott er ... hef upp á honum

Author:  totihs [ Tue 02. Dec 2008 23:49 ]
Post subject: 

Er hann ekki að tala um perur fyrir angel eyes?
Notar bara svona xenon "look" perur í hringina.
Ég er með svona sem ég keypti af honum IceDev hérna á spjallinu og þetta virkar alveg glimrandi.

Hvað eru menn annars að setja í kastarana hjá sér? Er verið að spreða í heilu kerfin eða nota menn bara svona lookalike perur í þá?
Er nefnilega búinn að vera að pæla í að setja xenon í þá, orðinn þreyttur á gula litnum.

Author:  DABBI SIG [ Wed 03. Dec 2008 00:40 ]
Post subject: 

Xenon í kastara er mjöt flott en getur stundum verið ágætis vesen bæði að komast að kösturunum og svo að finna festingu fyrir spennubreytinn. Annars eru menn held ég að fara allar leiðir, look-alike perur og kerfi.

Author:  totihs [ Wed 03. Dec 2008 03:36 ]
Post subject: 

Einhver hérna með nafn á góðum perum í svona æfingar?

Author:  Höfuðpaurinn [ Wed 03. Dec 2008 09:39 ]
Post subject: 

Ég setti xenon frá 3000gt í aðalljósin í E36 bílinn sem ég átti, einhverjar look-a-like perur úr bílanaust í kastarana og svo CCFL Angel Eyes af ebay.

Author:  JonHrafn [ Wed 03. Dec 2008 10:15 ]
Post subject: 

CCFL eru það spes hringir eða perur?

Author:  Höfuðpaurinn [ Wed 03. Dec 2008 13:24 ]
Post subject: 

JonHrafn wrote:
CCFL eru það spes hringir eða perur?


það var nú eitthvað svona dót sem ég keypti, þetta eru hringir með perum

http://cgi.ebay.com/BMW-E36-and-E39-Pur ... s=72%3A543

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/