Page 1 of 1

Mengun á íslensku lofti

PostPosted: Wed 19. Nov 2008 15:30
by ValliB
Fór með bílinn í skoðun í gær og fékk fallegan grænan miða útá útblástursmengun - CO innihald og Lambda. :?

Svo spurði skoðunargaurinn hvort það væri hvarfakútur í bílnum, og ég sagðist halda ekki því vitneskjan hjá fyrri eiganda stóð eitthvað á sér. Svo ég fékk athugasemd útá það einnig.
Fyrri eigandi sagði mér þó að það hefði verið græjað pústkerfið eitthvað fyrir skoðun '08 hjá fyrirtæki sem heitir Fjöður eða Fjöðurinn. Eru það einhverjir braskarar eða?
Sá það í tölvunni hjá skoðunargæjanum í Frumherja að hann hafði fengið athugasemd útá CO innihald þá.

Hvað leggið þið til að fátækur námsmaður geri?

Einnig væri gaman að fá að vita hvort það séu einhver pústverkstæði á Akureyri sem menn hafa góða reynslu af.


Með fyrirfram þökk og von um að flame verði í lágmarki.

PostPosted: Wed 19. Nov 2008 16:12
by birkire
Fjöðrin er bara pústverkstæði hérna í Reykjavík, snöggir og ódýrir af minni reynslu. Hugsa að hvaða pústverkstæði sem er geti hent hvarfa í bílinn.

PostPosted: Wed 19. Nov 2008 18:13
by jon mar
Það er mögulegt að K2 hér á Akureyri sé með pústverkstæði.

Ef þú kannar það máttur endilega droppa á mig pm ef þeir eru í pústsmíði.

PostPosted: Wed 19. Nov 2008 18:41
by demi
troða steinull í pústið ? :lol:

PostPosted: Wed 19. Nov 2008 18:57
by ValliB
demi wrote:troða steinull í pústið ? :lol:


Ég hugsaði vissulega um það en sleppti því :)

PostPosted: Wed 19. Nov 2008 20:57
by Lindemann
hella slatta af ísvara á bensíntankinn og fara með hann aftur í skoðun

PostPosted: Wed 19. Nov 2008 21:30
by ValliB
Lindemann wrote:hella slatta af ísvara á bensíntankinn og fara með hann aftur í skoðun


Já ég fer nú að verða frekar grunsamlegur, lét skoða hann í gær og fór svo aftur í dag til að tjékka á hvort hann mengaði eins mikið þegar ég var búinn að hreinsa pústið eins og hálkan leyfði.

Spurning um að fá lánað bara orginal loftsíuboxið, nýja loftsíu og skella smá dassi af ísvara á tankinn og prófa þetta inná Akureyri :)

PostPosted: Thu 20. Nov 2008 02:09
by Dóri-
já láttu hann ganga vel og lengi áður en þú ferð með hann inn til að pústið verði alveg sjóðandi heitt, já og ísvara í bensínið!