Fór með bílinn í skoðun í gær og fékk fallegan grænan miða útá útblástursmengun - CO innihald og Lambda.
Svo spurði skoðunargaurinn hvort það væri hvarfakútur í bílnum, og ég sagðist halda ekki því vitneskjan hjá fyrri eiganda stóð eitthvað á sér. Svo ég fékk athugasemd útá það einnig.
Fyrri eigandi sagði mér þó að það hefði verið græjað pústkerfið eitthvað fyrir skoðun '08 hjá fyrirtæki sem heitir Fjöður eða Fjöðurinn. Eru það einhverjir braskarar eða?
Sá það í tölvunni hjá skoðunargæjanum í Frumherja að hann hafði fengið athugasemd útá CO innihald þá.
Hvað leggið þið til að fátækur námsmaður geri?
Einnig væri gaman að fá að vita hvort það séu einhver pústverkstæði á Akureyri sem menn hafa góða reynslu af.
Með fyrirfram þökk og von um að flame verði í lágmarki.