Jæja þá skellti maður sér loksins í ruglið eina ferðina enn
Fékk alveg frábærann 525D Touring árgerð 2003 fyrir nokkuð gott verð
En að sjálfsögðu eru litlir gallar sem maður auðvitað átti von á...
PIXELS ? Dont you just hate em ? Já Radio displayið er morandi í dauðum pixlum.. er þetta tölvutengt eða er hægt að leysa þetta vandamál með því að skipta út þessari einingu ?
Sýnir -40° hita úti

ónýtur hitasensor ? mikið mál að skipta út ?
CD spilarinn tekur ekki við disknum (kem honum bara alls ekki í!) fastur diskur í honum (ekkert gerist þegar ég ýti á eject) ? Er kannski tengi fyrir CD-changer aftur í skotti ?
Er magnari í skotti staðlabúnaður í E39 ?
Felgur.. Maður man auðvitað aldrei neitt! Passa felgur af E32/E34/E38 beint á E39 ?
Annars er ég rosalega sáttur með kaggann. Vinnur alveg svakalega vel og skiptingin virkar eins og draumur. Allt annað virðist virka í bílnum
Tek myndir bráðlega og geri þráð í "Bílum meðlima"
Með fyrirfram þökk
Helgi