bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

E39 spurningar (525D Touring 2003)
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=33024
Page 1 of 1

Author:  Bandit79 [ Thu 13. Nov 2008 00:40 ]
Post subject:  E39 spurningar (525D Touring 2003)

Jæja þá skellti maður sér loksins í ruglið eina ferðina enn :P

Fékk alveg frábærann 525D Touring árgerð 2003 fyrir nokkuð gott verð

En að sjálfsögðu eru litlir gallar sem maður auðvitað átti von á...

PIXELS ? Dont you just hate em ? Já Radio displayið er morandi í dauðum pixlum.. er þetta tölvutengt eða er hægt að leysa þetta vandamál með því að skipta út þessari einingu ?

Sýnir -40° hita úti :? ónýtur hitasensor ? mikið mál að skipta út ?

CD spilarinn tekur ekki við disknum (kem honum bara alls ekki í!) fastur diskur í honum (ekkert gerist þegar ég ýti á eject) ? Er kannski tengi fyrir CD-changer aftur í skotti ?

Er magnari í skotti staðlabúnaður í E39 ?

Felgur.. Maður man auðvitað aldrei neitt! Passa felgur af E32/E34/E38 beint á E39 ?


Annars er ég rosalega sáttur með kaggann. Vinnur alveg svakalega vel og skiptingin virkar eins og draumur. Allt annað virðist virka í bílnum

Tek myndir bráðlega og geri þráð í "Bílum meðlima"

Með fyrirfram þökk
Helgi

Author:  íbbi_ [ Thu 13. Nov 2008 03:57 ]
Post subject: 

hitasensorinn er undir framstuðaranum, nokkuð algengt, kostar lítið og ekkert mál að skipta um,

pixlamálið er staðalbúnaður í þessum bílum. og E38 og x5 og flr bílum sem ég hef verið innanum, ég fór í þetta í E38 bíl sem ég átti, þá var allavega eina vitræna lausnin að skipta þessu út, ég fékk complete stykkin úr öðrum bíl,

þekki þetta ekki með spilarann

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/