bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Útleiðsla E38.
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=32990
Page 1 of 2

Author:  BMWRLZ [ Tue 11. Nov 2008 15:52 ]
Post subject:  Útleiðsla E38.

Bíllinn minn leiðir einhverstaðar út rafmagni, tæmir geyminn á einni nóttu, á tölvuaflestur hjá B&L að geta fundið þetta út eða myndi það bara kallast heppni ef svo væri.

Author:  raxions [ Tue 11. Nov 2008 16:02 ]
Post subject: 

Úff, ég finn sárlega til með þér.

Satt best að segja hef ég ekki mikla trú á að B&L finni þetta í fljótu bragði. Sjálfur á ég E38 sem tæmir 100amperstunda geymi á 3 dögum með keyrslu hvern dag.

Hann hefur farið amk 4 sinnum til BogL, fundu ekki neitt.(vildu nú jafnvel ganga svo langt að halda því fram að það væri engin útleiðsla).....TB ekki heldur.

Þetta er ekkert nema leiðinda vesen.

Author:  raxions [ Tue 11. Nov 2008 16:04 ]
Post subject: 

Vona að þú finnir þetta samt :wink:

En ég er BTW búinn að standa í þessu í eitt og hálft ár án árangurs.

Author:  Saxi [ Tue 11. Nov 2008 16:25 ]
Post subject: 

Skot út í bláinn en eruð þið með innbyggðan síma eða símahleðslutæki sem þið takið ekki úr bílnum.

Lenti í því á X5 að ef ég skildi hleðslutæki eftir í bílnum (enginn sími þó) þá kláraði hann út af geyminum. Einnig ef ég skildi eftir síma í armpúðavöggunni.

ömurlega leiðinlegt að reyna að finna útleiðslu.

Kveðja

Author:  BMWRLZ [ Tue 11. Nov 2008 16:39 ]
Post subject: 

þetta einmitt byrjaði þannig að það slökknaði ekki á símanum í honum, tók þá öryggið fyrir hann út þannig að það er aldrei kveikt á honum, enn spurning hvort að það sé eitthvað meira unit í kringum hann sem er þá alltaf í gangi ennþá.

Hvað gastu gert til þess að leysa þetta hjá þér?

Author:  Alpina [ Tue 11. Nov 2008 18:27 ]
Post subject: 

Er möguleiki að geymarnir ((aðalega annar )) séu hreinlega slappir//lélegir//nær ónýtir ??

Author:  Saxi [ Wed 12. Nov 2008 12:06 ]
Post subject: 

það sem við gerðum var að passa að hafa aldrei hleðslutæki í sambandi þegar við lögðum bílnum á kvöldin. Þetta skánaði mikið en var sennilega búið að eyðileggja geyminn (hélt áfram að tæmast út af honum en hægar þó).

Skiptum um geymi og allt í besta lagi, ætli það sé ekki ár síðan við stóðum í þessu.

Kveðja

Author:  raxions [ Thu 13. Nov 2008 08:31 ]
Post subject: 

Það er sennilega sniðugt að prófa að taka úr sambandi þessa hluti sem eru að draga mikið rafmagn, s.s. navigation kerfið í skottinu( ef það er), símann, geisladiskamagasínið ofl þess háttar.....

Author:  Daddi [ Thu 13. Nov 2008 11:03 ]
Post subject: 

Ég leitað að svona bilun einu sinni og sá að öryggjaboxið var alsett í spanskrænu þegar é kíkti inní það.

Author:  x5power [ Fri 14. Nov 2008 00:38 ]
Post subject: 

takid minusin ur sambandi og setjid prufulampa a milli , ef logar a honum er utleysla, byrjid a ad taka oryggin ur thar til ljosid slokknar, passid ad allar hurdar seu lokadar og slokkt a ollu i bilnum.

Author:  Stebbtronic [ Fri 14. Nov 2008 13:02 ]
Post subject: 

x5power wrote:
takid minusin ur sambandi og setjid prufulampa a milli , ef logar a honum er utleysla, byrjid a ad taka oryggin ur thar til ljosid slokknar, passid ad allar hurdar seu lokadar og slokkt a ollu i bilnum.


eða bara taka avo-mæli og straummæla á milli snertanna f. öryggin, auðvitað með slökkt á öllu og allar dyr lokaðar. Á því öryggi sem mælist straumur í gegn þar er útleiðsla.

Author:  raxions [ Sat 15. Nov 2008 11:45 ]
Post subject: 

Búinn að láta á þetta reyna, hjá mér amk.
Útleiðslan virðist bara birtast í einhverju nýju kerfi um leið og eitt er tekið úr sambandi.

Author:  Stebbtronic [ Sat 15. Nov 2008 12:06 ]
Post subject: 

þá ertu sennilega að gera eitthvað vitlaust, nema að það sé útleiðsla í fleiri en einni grein, ertu viss um að þú sért að mæla straum, ekki spennu?

Author:  raxions [ Sat 15. Nov 2008 13:06 ]
Post subject: 

Ég reyndar verð að viðurkenna að ég gerði þetta ekki sjálfur, ég fór með bílinn 3svar eða oftar til BogL og þeir mældu útleiðsluna, stóð nú reyndar ekki yfir þeim á meðan þeir gerðu það.
Svo síðast fór ég með bílinn til frænda míns sem þekkir BMW viðgerðir mikið(vann hjá BMW á sínum tíma), og hann fór yfir þetta allt.

En eins og ég segi, ég ætti kannski að reyna þetta bara sjálfur(og gera ráð fyrir að allir hafi verið að gera einhverja bölvaða vitleysu)... :lol:

Author:  MrManiac [ Sat 15. Nov 2008 15:39 ]
Post subject:  Re: Útleiðsla E38.

BMWRLZ wrote:
Bíllinn minn leiðir einhverstaðar út rafmagni, tæmir geyminn á einni nóttu, á tölvuaflestur hjá B&L að geta fundið þetta út eða myndi það bara kallast heppni ef svo væri.


Er bílinn þinn kominn á ferðina aftur ?????????????????????'

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/