bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Skipta um perur í mælaborði í e36
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=32956
Page 1 of 1

Author:  Elnino [ Sun 09. Nov 2008 22:24 ]
Post subject:  Skipta um perur í mælaborði í e36

Það eru 1-2 perur sprungnar í mælaborðinu hjá mér. Hjá bensínmælinum.
Hvernig er farið að því að komast að þessu?? hefur einhver gert þetta og getur sagt mér hvernig þetta er gert :)

kv.

Author:  ömmudriver [ Mon 10. Nov 2008 00:17 ]
Post subject: 

Minnsta mál, það ættu að vera heilar tvær skrúfur sem að halda mælaborðinu á sínum stað en þær eru "uppi" eða efst. Svo þarft þú líklegast að taka stýrið úr bílnum til þess að ná mælaborðinu síðan úr og þá þarftu að passa þig á því að taka rafgeyminn úr sambandi áður en þú gerir það svo að þú fáir ekki airbag ljósið í mælaborðið þegar að þú kveikir næst á bílnum.

En til þess að nálgast perurnar þá þarftu annaðhvort að taka bakið af mælaborðinu eða þá að þú sérð strax neðst á mælaborðinu hvort að þú getir skrúfað perurnar úr þar án þess að taka bakið af.

Perurnar færðu ef ég man rétt einungis í umboðinu og ættu þær ekki að kosta mikið og vera til hjá þeim.

Það eina sem ég er ekki viss er hvernig stýrið er tekið úr bílnum hjá þér þar sem að það er væntanlega með airbag en eftir á að hyggja þá held ég að þú þurfir ekki að taka stýrið úr, bara draga stýrið alveg út og niður og þá ætti þetta að vera barnaleikur :wink:

Author:  Elnino [ Mon 10. Nov 2008 00:48 ]
Post subject: 

Takk kærlega fyrir þetta :D

Þarf að drífa mig að þessu í vikunni
:wink:

Author:  Einari [ Mon 10. Nov 2008 08:34 ]
Post subject: 

þú átt að ná að troða mælaborðinu úr án þess að taka stýrið, ég náði því allavega, og perurnar eru bara ósköp venjulegar 5W stöðuljósaperur sem þú átt að fá á næstu bensínstöð.
Þannig var þetta allavega í 316 ´96 :wink:

Author:  Misdo [ Mon 10. Nov 2008 11:10 ]
Post subject: 

ég var með þráð um þetta um daginn og þá voru póstaðar myndir sem sýnir frá a-ö hvernig þetta er gert þetta er easy :)

Author:  Elnino [ Tue 11. Nov 2008 21:09 ]
Post subject: 

Var ekkert máð að losa þessi tengið að aftan??

http://rides.webshots.com/photo/1219887 ... 4788rQdkRZ

Author:  Angelic0- [ Tue 11. Nov 2008 21:24 ]
Post subject: 

nei, ef að þú skoðar þetta vel þá fattaru á núlleinni hvernig á að losa þetta ;)

Author:  Elnino [ Wed 12. Nov 2008 00:23 ]
Post subject: 

ég er ekki að ná að losa þetta drasl.. ég þori ekkert að taka á þessu. svo er svo lítið pláss þarna að það er ekki nokkur möguleiki að komast almennilega að þessu helvítis rusli :evil:

Author:  ömmudriver [ Wed 12. Nov 2008 01:04 ]
Post subject: 

Elnino wrote:
ég er ekki að ná að losa þetta drasl.. ég þori ekkert að taka á þessu. svo er svo lítið pláss þarna að það er ekki nokkur möguleiki að komast almennilega að þessu helvítis rusli :evil:


Anda inn, anda út oooooooog drekka einn kaldann!! :lol:

Skoðaðu aðeins dótið ertu ekki annars í vandræðum með að losa tengin aftan af mælborðinu sjálfu??

Þetta er alveg verk fyrir grunnskólakrakka þetta er það auðvelt :)

Author:  Elnino [ Wed 12. Nov 2008 01:15 ]
Post subject: 

júbb vandamálið er að losa tengin þarna að aftan. Lúkkar rosalega auðvelt á þessari skýringarmynd sem þessi dúddi með tannlæknatangirnar er með. Ég þarf greinilega bara að tékka betur á þessu á morgun..

en er ég að skilja rétt.. þarf ég að ýta á þessi tengi (ýta þeim inn) og plokka svo upp þessa festingu?

Author:  Höfuðpaurinn [ Wed 12. Nov 2008 09:43 ]
Post subject: 

Hvíta plastinu er ýtt til hliðar og þá losnar tengið ef ég man þetta rétt.
Þetta var allavegana ekkert mál þegar ég gerði þetta í gamla mínum.

Author:  Angelic0- [ Wed 12. Nov 2008 14:11 ]
Post subject: 

það er einskonar "takki" ofaná miðju tenginu, þú ýtir honum niður og rennir hvíta plastinu.... þegar að þú rennir hvíta plastinu, þá þrýstist tengið úr sambandi...

Hvíta plastið fer í einskonar stýringar :!:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/