bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Rúðupisstankur sem lekur https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=32941 |
Page 1 of 1 |
Author: | markusk [ Sat 08. Nov 2008 23:46 ] |
Post subject: | Rúðupisstankur sem lekur |
Ég hef með mjög stuttu millibili fyllt á rúðupisstankinn hjá mér, hef samasem ekkert notað rúðupissið og ég er alltaf að fá meldingu um að tankurinn sé tómur, sem reynist rétt. Ég fór með bílinn í TB og lét þá athuga tankinn og þeir fundu ekki lekann, samt lekur tankurinn ennþá. Þetta er BMW 320i E90 árgerð 2005. Er einhver hér sem hefur lent í sviðuðu máli? Hvað er best fyrir mig að gera? Þetta er vægast sagt mjög pirrandi ![]() Öll svör og ábendingar eru vel þegin. |
Author: | ömmudriver [ Sun 09. Nov 2008 18:25 ] |
Post subject: | |
Er tankurinn sjáanlegur þegar vélarrýmið er opið?? Hefur alltaf verið sett á hann frostþolið rúðupiss, ef ekki þá eru góðar líkur á því að tankurinn hafi frostsprungið og kemur þá bara fín sprunga í tankinn sem sést ekkert endilega. Svo er sterkur leikur að athuga allar leiðslurnar frá tanknum því þær gætu lekið. |
Author: | Alpina [ Sun 09. Nov 2008 18:40 ] |
Post subject: | |
ömmudriver wrote: Er tankurinn sjáanlegur þegar vélarrýmið er opið??
Hefur alltaf verið sett á hann frostþolið rúðupiss, ef ekki þá eru góðar líkur á því að tankurinn hafi frostsprungið og kemur þá bara fín sprunga í tankinn sem sést ekkert endilega. Svo er sterkur leikur að athuga allar leiðslurnar frá tanknum því þær gætu lekið. Einmitt |
Author: | bjornod [ Mon 10. Nov 2008 12:13 ] |
Post subject: | Re: Rúðupisstankur sem lekur |
markusk wrote: Ég hef með mjög stuttu millibili fyllt á rúðupisstankinn hjá mér, hef samasem ekkert notað rúðupissið og ég er alltaf að fá meldingu um að tankurinn sé tómur, sem reynist rétt.
Ég fór með bílinn í TB og lét þá athuga tankinn og þeir fundu ekki lekann, samt lekur tankurinn ennþá. Þetta er BMW 320i E90 árgerð 2005. Er einhver hér sem hefur lent í sviðuðu máli? Hvað er best fyrir mig að gera? Þetta er vægast sagt mjög pirrandi ![]() Öll svör og ábendingar eru vel þegin. Sæll, Ég var að uppgötva svipað á E46 touring. Kúturinn er vel aðgengilegur og einungis festur með einni skrúfu. Ég tók kútinn út og fyllti hann af vatni, en sá enga sprungu. Mig grunar helst þéttinguna þar sem dælunum er stungið í kútinn. Tvær dælur eru í kútnum og sýndist mér í morgun leka með annarri. Þú getur sannreynt það með því að þreifa undir þær og ef það kemur bleyta á fingurna, þá lekur með dælunum. (ykkur er velkomið að snúa út úr þessari lýsingu, en það er á eigin ábyrgð) BO |
Author: | Angelic0- [ Mon 10. Nov 2008 13:03 ] |
Post subject: | |
Ertu ekki bara með "S" Superwash ![]() Þá er yfirleitt fljótt að tæmast af tönkunum... |
Author: | ///MR HUNG [ Mon 10. Nov 2008 20:40 ] |
Post subject: | |
ömmudriver wrote: Er tankurinn sjáanlegur þegar vélarrýmið er opið?? Nei það er álíka sterkur leikur og Tommi í sjómann.
Hefur alltaf verið sett á hann frostþolið rúðupiss, ef ekki þá eru góðar líkur á því að tankurinn hafi frostsprungið og kemur þá bara fín sprunga í tankinn sem sést ekkert endilega. Svo er sterkur leikur að athuga allar leiðslurnar frá tanknum því þær gætu lekið. Það er ekkert rennsli í þeim nema að dælan sé í gangi. |
Author: | markusk [ Wed 12. Nov 2008 08:11 ] |
Post subject: | |
Takk fyrir þessar ábendingar og svör. Ég tók eftir því í gær að það lekur undir hægra framljósinu þó svo að tankurinn sé vinstra meginn í bílnum. Ég er með sprautur fyrir ljósin, kannski liggur vandamálið þar?? Ég kemst ekki að tanknum sjálfum, sé bara aðeins stútinn og því ómögulegt fyrir mig að kanna þetta nánar sjálfur. Ég er alla veganna búinn að panta tíma hjá TB í næstu viku, vona bara að þeir finni lekann og nái að gera við þetta. |
Author: | Angelic0- [ Wed 12. Nov 2008 14:09 ] |
Post subject: | |
markusk wrote: Takk fyrir þessar ábendingar og svör.
Ég tók eftir því í gær að það lekur undir hægra framljósinu þó svo að tankurinn sé vinstra meginn í bílnum. Ég er með sprautur fyrir ljósin, kannski liggur vandamálið þar?? Ég kemst ekki að tanknum sjálfum, sé bara aðeins stútinn og því ómögulegt fyrir mig að kanna þetta nánar sjálfur. Ég er alla veganna búinn að panta tíma hjá TB í næstu viku, vona bara að þeir finni lekann og nái að gera við þetta. Mjög líklega, og það var nú eiginlega það sem að ég reyndi að benda á en gat ekki komið orðum að ![]() |
Author: | markusk [ Wed 12. Nov 2008 14:53 ] |
Post subject: | |
Hins vegar þá er ekki tveir tankar í bílnum, s.s. venjulegur og superwash. Einhver af leiðslunum sem liggur til ljósasprautanna hlýtur að leka. |
Author: | ///MR HUNG [ Wed 12. Nov 2008 19:04 ] |
Post subject: | |
markusk wrote: Hins vegar þá er ekki tveir tankar í bílnum, s.s. venjulegur og superwash. Einhver af leiðslunum sem liggur til ljósasprautanna hlýtur að leka. Já það gæti passað því það er sírensli á ljósapissinu.
|
Author: | bjornod [ Tue 25. Nov 2008 10:55 ] |
Post subject: | |
markusk wrote: Takk fyrir þessar ábendingar og svör.
Ég tók eftir því í gær að það lekur undir hægra framljósinu þó svo að tankurinn sé vinstra meginn í bílnum. Ég er með sprautur fyrir ljósin, kannski liggur vandamálið þar?? Ég kemst ekki að tanknum sjálfum, sé bara aðeins stútinn og því ómögulegt fyrir mig að kanna þetta nánar sjálfur. Ég er alla veganna búinn að panta tíma hjá TB í næstu viku, vona bara að þeir finni lekann og nái að gera við þetta. Er búið að græja málið? Hvar lak? |
Author: | Astijons [ Tue 25. Nov 2008 19:02 ] |
Post subject: | |
ehhh... settu vatnskassaþétti ofan í... ![]() |
Author: | markusk [ Sat 29. Nov 2008 17:35 ] |
Post subject: | |
Jæja loksins búið að finna hvað var að. Rúðupissdælan fyrir vinstra framljósið var brotin. Henni var skipt út og nú er hætt að leka ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |