Page 1 of 1

Bankhljóð í fjöðrun

PostPosted: Mon 03. Nov 2008 17:30
by DABBI SIG
Sælir,

Ég fór að taka eftir smá bank hljóði (kloink hljóði) vinstra megin í bílnum þegar er keyrt yfir ójöfnur. Gerist aðallega á hraðahindrunum sem eru með bratta/hvassa kanta en þá kemur smá högg hljóð.
Reyndar kom þetta hljóð eiginlega fyrst eftir að ein helvítis hraðahindrunin var með stæla og var ekki að sýna sig í myrkri og ég fór svolítið harkalega á hana... samt ekkert hræðilegt, en fannst þetta hljóð hafa komið eftir það...
Ég þóttist alveg kannast við málið og fór því og skipti um spyrnufóðringu sem ég hélt einmitt að væri kominn á tíma.
Við þetta fór hinsvegar hljóðið ekki.
Það eru nýlegir balancestangarendar báðum megin og núna nýjar spyrnufóðringar.


Hvað gæti þetta verið? Demparapúðar? Balancestangargúmmí?
Eitthvað meira vesen? :?

Kv. Dabbi

PostPosted: Mon 03. Nov 2008 17:40
by Einarsss
gæti líka verið að þú hafir skemmt dempara

PostPosted: Tue 04. Nov 2008 01:18
by Axel Jóhann
Myndi allavega skoða ballancestangargúmmi.

PostPosted: Tue 04. Nov 2008 13:56
by DABBI SIG
Já, gleymdi að nefna að þetta er að framan já...

Heyrði frá einum reyndum að þetta gæti hafi brotnað mótorbiti?
Gæti það orsakað svona hljóð??? :?

PostPosted: Tue 04. Nov 2008 19:06
by ömmudriver
DABBI SIG wrote:Já, gleymdi að nefna að þetta er að framan já...

Heyrði frá einum reyndum að þetta gæti hafi brotnað mótorbiti?
Gæti það orsakað svona hljóð??? :?


Já.

PostPosted: Tue 04. Nov 2008 19:19
by jon mar
Held samt að það hljóti nú að vera ansi ólíklegt að mótorbitinn sé brotinn :lol:

PostPosted: Tue 04. Nov 2008 19:21
by Einarsss

PostPosted: Tue 04. Nov 2008 19:28
by ömmudriver
einarsss wrote:http://www.youtube.com/watch?v=hJC_hyK2HEI


Góður Einar :lol: