bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Viðurkennd Verkstæði ?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=32686
Page 1 of 3

Author:  DoriSig [ Mon 27. Oct 2008 19:41 ]
Post subject:  Viðurkennd Verkstæði ?

Gott kvöld.

Um daginn var einhver sem var ekki að fylgjast með og dúndraði aftan á elskuna mína (525 E34).
Ég fer og tala við tryggingarfélagið og þeir segja mér að velja mér viðurkennt verkstæði og hringja síðan þangað og spurja hvort þeir geti tekið bílinn.

Ég var að spá hvort einhver hérna hefði reynslu eða hugmynd um eitthvað gott verkstæði sem gæti gert bílinn minn eins og nýjann :D ??

PS : (svakalegir stuðarar á þessum bílum haha, það brotnaði aðeins ljósið og skottið getur ekki lokast og beyglaðist aðeins. En stuðarinn er í fínulagi en reyndar gekk platan í skottinu upp sem er svona aðalskemmdin.. en hinn bílinn sem keyrði aftan á mig, hann var a Nissan Maxima.. og bílinn hans fór í mauk haha, hann gjörsamlega féll saman)


Anyway, einhver með verkstæði í huga ?? .. :idea:

Author:  523je [ Mon 27. Oct 2008 20:07 ]
Post subject: 

bílamáluninn örninn i mosfelsbæ mega gott verkstæði faglegvinnubrögð fyrir allan peninginn

Author:  sh4rk [ Mon 27. Oct 2008 20:14 ]
Post subject: 

Quote:
bílamáluninn örninn i mosfelsbæ mega gott verkstæði faglegvinnubrögð fyrir allan peninginn


Ertu ekki að grínast?????? Maðurinn sem á verkstæðið er fáviti og er ekkert með sérlega góð vinnubrögð, og er óendanlega lengi að vinna fyrir einkaaðila.
Er búinn að lenda í þessum gaur og það tók ár að sprauta E23 bíllinn minn þarna og hann nennti aldrei að gera neitt í honum og kom bara með einhverjar afskanir og eitthvað kjaftæði því að honum fannst hann vera að fá of lítið fyrir sína vinnu

Author:  Aron Andrew [ Mon 27. Oct 2008 20:16 ]
Post subject: 

Ekki fara á réttingaverkstæði Trausta í kópavogi...

Bíllinn minn var þar í 9 mán og nú er komið í ljós að allt sem þeir gerðu er ónýtt :?

Author:  Axel Jóhann [ Mon 27. Oct 2008 20:18 ]
Post subject: 

Bílaverkstæðið Bragginn, Vestmannaeyjum. MJÖG GÓÐIR.

Author:  Djofullinn [ Mon 27. Oct 2008 20:19 ]
Post subject: 

Aron Andrew wrote:
Ekki fara á réttingaverkstæði Trausta í kópavogi...

Bíllinn minn var þar í 9 mán og nú er komið í ljós að allt sem þeir gerðu er ónýtt :?
WTF???????? Hvernig?

Author:  sh4rk [ Mon 27. Oct 2008 20:19 ]
Post subject: 

Talaðu við þá í b&l og spurðu hvaða réttingar og sprautuverkstæði þeir versla við ég held nefnilega það sé mjög gott

Author:  Steini B [ Mon 27. Oct 2008 20:22 ]
Post subject: 

sh4rk wrote:
Talaðu við þá í b&l og spurðu hvaða réttingar og sprautuverkstæði þeir versla við ég held nefnilega það sé mjög gott

Þeir eiga sitt eigið sprautuverkstæði, Bílaspítalinn
Veit ekki hvort þeir rétta líka...

Author:  arnibjorn [ Mon 27. Oct 2008 20:30 ]
Post subject: 

Aron Andrew wrote:
Ekki fara á réttingaverkstæði Trausta í kópavogi...

Bíllinn minn var þar í 9 mán og nú er komið í ljós að allt sem þeir gerðu er ónýtt :?


Typpakallinn :lol:

Klárlega versta "verkstæði" ever.

Author:  Aron Andrew [ Mon 27. Oct 2008 20:32 ]
Post subject: 

Djofullinn wrote:
Aron Andrew wrote:
Ekki fara á réttingaverkstæði Trausta í kópavogi...

Bíllinn minn var þar í 9 mán og nú er komið í ljós að allt sem þeir gerðu er ónýtt :?
WTF???????? Hvernig?


Það var ekkert grunnað eða neitt, ryðgað í mauk núna...

Author:  DABBI SIG [ Mon 27. Oct 2008 20:34 ]
Post subject: 

Steini B wrote:
sh4rk wrote:
Talaðu við þá í b&l og spurðu hvaða réttingar og sprautuverkstæði þeir versla við ég held nefnilega það sé mjög gott

Þeir eiga sitt eigið sprautuverkstæði, Bílaspítalinn
Veit ekki hvort þeir rétta líka...


Ha? er ekki bílaspítalinn í Hafnarfirði og er með samning við Heklu?
Ég hélt að B&L væri með sitt eigið sprautuverkstæði sem er þarna í götunni fyrir neðan klettháls.

Author:  sh4rk [ Mon 27. Oct 2008 20:37 ]
Post subject: 

ok eru þeir með sitt eigið verkstæði

Author:  Alpina [ Mon 27. Oct 2008 20:50 ]
Post subject: 

En gæinn þarna í spaugstofunni ...
hann er seigur í að ......... kjulla......... hlutina :shock:

Author:  HAMAR [ Mon 27. Oct 2008 20:58 ]
Post subject: 

Ég mæli með www.bilaretting.is
hafa lagað fyrir mig BMW 750i og Benz '05
Topp vinnubrögð í alla staði.

Author:  ///MR HUNG [ Mon 27. Oct 2008 20:59 ]
Post subject: 

DABBI SIG wrote:
Steini B wrote:
sh4rk wrote:
Talaðu við þá í b&l og spurðu hvaða réttingar og sprautuverkstæði þeir versla við ég held nefnilega það sé mjög gott

Þeir eiga sitt eigið sprautuverkstæði, Bílaspítalinn
Veit ekki hvort þeir rétta líka...


Ha? er ekki bílaspítalinn í Hafnarfirði og er með samning við Heklu?
Ég hélt að B&L væri með sitt eigið sprautuverkstæði sem er þarna í götunni fyrir neðan klettháls.
Þeir eru bæði með sitt eigið og eiga líka Spítalann.

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/