bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Frost
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=32656
Page 1 of 3

Author:  gardara [ Sun 26. Oct 2008 07:27 ]
Post subject:  Frost

Það er alveg ótrúlegt hvað hurðarnar á e36 bílnum mínum frjósa mikið, lásinn bílstjóramegin er iðulega frosinn og svo eru hurðarnar ásamt bensínlokinu oft pikkföst....
Hef ekki lent í þessu með aðra bíla sem ég hef umgengist... Hver gæti verið ástæðan?

Author:  íbbi_ [ Sun 26. Oct 2008 11:32 ]
Post subject: 

ég hef reyndar átt í meiriháttar vandræðum með freðnar hurðar og hurðahúna á bmw-um sem ég hef átt..

Author:  Hannsi [ Sun 26. Oct 2008 12:05 ]
Post subject: 

Aldrei lent í þessu nema á E36 bílnum sem ég átti.

Author:  jon mar [ Sun 26. Oct 2008 12:29 ]
Post subject: 

lásaolía, silicone og feiti á og í allt mekkanó og pakkningar og þá er maður golden :wink:

Author:  Einsii [ Sun 26. Oct 2008 13:37 ]
Post subject: 

svo er líka defrost búnaður à læsingunum í held èg flestum BMW

Author:  BirkirB [ Sun 26. Oct 2008 13:54 ]
Post subject: 

Ég opnaði minn e36 í frosti einn morguninn, að verða of seinn í skólann,
svo þegar ég ætlaði að loka hurðinni þá var læsingin frosin föst. Þá var ég keyrandi með hálfopna hurð í skólann...

Mér finnst BMW ekkert vera neinir vetrarbílar...

Author:  elli [ Sun 26. Oct 2008 14:27 ]
Post subject: 

Hef lent í svona frost rugli á E38, en gamli góði E32 klikkar ekki.. 7.9...13

Author:  raxions [ Sun 26. Oct 2008 14:35 ]
Post subject: 

Já ég hef sjálfur lent í því að geta ekki lokað hurðinni aftur á E38. Frekar mikið bögg.

Author:  elli [ Sun 26. Oct 2008 15:20 ]
Post subject: 

raxions wrote:
Já ég hef sjálfur lent í því að geta ekki lokað hurðinni aftur á E38. Frekar mikið bögg.

Sprauta heitu vatni á hurðina fyrir neðan læsinguna í smá stund þá lagast læsingin.
E39 og E38 eiga við þetta leiðinda vandamál að stríða.

Author:  Angelic0- [ Sun 26. Oct 2008 15:21 ]
Post subject: 

Er enginn hérna sem að notar hitagaurinn í hurðarþéttikantinum ??

Tosa laust í hurðahúninn og halda í 15-20sek og opna svo hurðina...

Bara gaman að þessu...

Author:  Jónas Helgi [ Sun 26. Oct 2008 15:22 ]
Post subject: 

Ég var allan síðasta vetur með eina höndina á hurðinni og hina á stýrinu á leiðinni í vinnuna á e46unni.
Fraus alltaf helv. læsingin! þangað til að ég fattaði í lok vetrarins að fara bara inn farþegameginn og príla bara yfir.

Author:  elli [ Sun 26. Oct 2008 15:25 ]
Post subject: 

Angelic0- wrote:
Er enginn hérna sem að notar hitagaurinn í hurðarþéttikantinum ??

Tosa laust í hurðahúninn og halda í 15-20sek og opna svo hurðina...

Bara gaman að þessu...

Hef notað læsingahitarann í E32 8) virkar bara flott

Author:  Angelic0- [ Sun 26. Oct 2008 15:27 ]
Post subject: 

elli wrote:
Angelic0- wrote:
Er enginn hérna sem að notar hitagaurinn í hurðarþéttikantinum ??

Tosa laust í hurðahúninn og halda í 15-20sek og opna svo hurðina...

Bara gaman að þessu...

Hef notað læsingahitarann í E32 8) virkar bara flott

Þetta gerði mikla lukku hjá mér á E39... ég hélt alltaf að þetta væri bara bull... en þetta virkar :)

Prófaði þetta reyndar líka á E36, en hurðin opnaðist með herkjum, var samt ekki föst.... svoooooo....

Author:  elli [ Sun 26. Oct 2008 15:29 ]

hehe gáfaða þýskaland 8)

Author:  Angelic0- [ Sun 26. Oct 2008 15:33 ]

x94,3

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/