bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Bíllinn minn fer ekki í gang
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=32552
Page 1 of 1

Author:  Brútus [ Tue 21. Oct 2008 11:04 ]
Post subject:  Bíllinn minn fer ekki í gang

Er í ferlegum vandræðum.
Bíllinn minn stóð aðgerðarlaus í bílskúr í nokkra daga og fór svo ekki í gang.
Hann startar en mér finnst hljóðið frekar þurt.
Er búinn að prufa að hlaða hann til öryggis en það virðist ekki vera factor í þessari bilun.
bmw e36 320i 96
Hvað er líklegast að sé að klikka?

Author:  Hannsi [ Tue 21. Oct 2008 12:06 ]
Post subject: 

Fær bíllinn bensín? Og Neista?

Author:  Brútus [ Tue 21. Oct 2008 13:42 ]
Post subject: 

Hannsi wrote:
Fær bíllinn bensín? Og Neista?

Ég er ekki alveg viss sko.
Er einhver solid leið til að tjekka það ?
Er hægt að greina það á start "hljóðinu" ?

Author:  Hannsi [ Tue 21. Oct 2008 14:07 ]
Post subject: 

Brútus wrote:
Hannsi wrote:
Fær bíllinn bensín? Og Neista?

Ég er ekki alveg viss sko.
Er einhver solid leið til að tjekka það ?
Er hægt að greina það á start "hljóðinu" ?

Getur tekið eitt háspennukefli úr og prófað að setja það við málm meðan er startað til að sjá hvort neisti komi (stundum gott að hafa kerti á því). Eftir að þú ert búinn að starta smá ætti að finnast bensínlykt uppúr cyl sem þú tekur háspennukeflið og kertið úr.

Author:  Angelic0- [ Tue 21. Oct 2008 15:50 ]
Post subject: 

Lykillinn ónýtur skýt ég á...

EWS er pain :!:

Author:  Brútus [ Tue 21. Oct 2008 16:40 ]
Post subject: 

Angelic0- wrote:
Lykillinn ónýtur skýt ég á...

EWS er pain :!:

hmm . . það síðasta sem að mér hefði dottið í hug . .en þegar að þú minnist á það þá er lykilinn hjá mér mjög eyddur og ljótur.

einhver aðferð til að sannreyna það án þess að panta nýjan og prufa ?

Hannsi wrote:
Brútus wrote:
Hannsi wrote:
Fær bíllinn bensín? Og Neista?

Ég er ekki alveg viss sko.
Er einhver solid leið til að tjekka það ?
Er hægt að greina það á start "hljóðinu" ?

Getur tekið eitt háspennukefli úr og prófað að setja það við málm meðan er startað til að sjá hvort neisti komi (stundum gott að hafa kerti á því). Eftir að þú ert búinn að starta smá ætti að finnast bensínlykt uppúr cyl sem þú tekur háspennukeflið og kertið úr.

Verð að athuga þetta . . takk fyrir að svara.

Author:  Lindemann [ Tue 21. Oct 2008 18:00 ]
Post subject: 

Angelic0- wrote:
Lykillinn ónýtur skýt ég á...

EWS er pain :!:

stundum er nóg að kóða lykla uppá nýtt....það getur þurrkast útaf þeim.

Author:  Brútus [ Thu 30. Oct 2008 23:44 ]
Post subject: 

Þökk sé "Geysir" þá er þetta komið í lag.
Við skrúfuðum kertin úr og létum drjúpa eins og einn tappa af smurolíu í götin.
svo bættum við örlítið af bensíni á hann og bíllinn drattaðist í gang fyrst með smá lagni en er núna kominn með bara eðlilegt start og ríkur í gang á no-time.
Búinn að standa óhreifður í mánuð. veit svosem ekki hvort að þetta sé eðlilegt að bílar láti svona eftir ekki lengri tíma en þetta óhreyfðir.

Allavega þakka svörin frá ykkur hér.

Author:  Misdo [ Thu 30. Oct 2008 23:52 ]

ætli þetta sé sama rugl og ég er að fara í gegnum ?
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=32758

Author:  Brútus [ Fri 31. Oct 2008 00:15 ]
Post subject: 

Misdo wrote:

hmm . .
Sko eftir svona 20 daga. þá setti ég hleðslutæki á geyminn minn. Bíllinn startaði bara frekar ljúft en fór ekki í gang. Hljómar bara eiginlega mjög svipað vandamál.
Samt margar ábendingar góðar sem að menn benda á en annars þá er þetta sem að ég lýsti ekki erfið aðgerð í sjálfum sér. Afi minn sagði mér að ég ætti að gera þetta svona og hann á verkstæði. Þetta virkaði allavega fyrir mig :)

Author:  Alpina [ Fri 31. Oct 2008 06:00 ]
Post subject: 

Mjög þekkt vandamál í M5x vélum er ::::::::::::::

ef bíll er ræstur og látinn ganga í stutta stund þurrkar bensinið upp olíuna í stimpilhúsinu og þjappann þar af leiðandi afleit ,, mikið atriði er að bíllinn gangi í smá tíma til að fá eilítinn yl í blokkina

Author:  Brútus [ Fri 31. Oct 2008 08:39 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
Mjög þekkt vandamál í M5x vélum er ::::::::::::::

ef bíll er ræstur og látinn ganga í stutta stund þurrkar bensinið upp olíuna í stimpilhúsinu og þjappann þar af leiðandi afleit ,, mikið atriði er að bíllinn gangi í smá tíma til að fá eilítinn yl í blokkina

Já . . hann var einmitt alveg búinn að fá nokkrar stuttar tilfæringar á þessum mánuði sem að hann var ekki í notkun.
En djöfull reykti hann fyrstu mínoturnar eftir að ég startaði þegar að ég var búinn að sulla smá smurolíu þarna ofaní kertagötin :lol:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/