bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Dekk og akstursstefna á E34 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=32516 |
Page 1 of 2 |
Author: | Ragnar [ Sun 19. Oct 2008 03:26 ] |
Post subject: | Dekk og akstursstefna á E34 |
Daginn. Ég er með 34 540 Er búsettur á selfossi og á mér oft leið á höfuðborgarsvæðið, þá byrja vandamálinn. Bíllinn tekur rikki hægri og vinstri eins og hann detti ofaní förin. Ég reyni nú oftast að keyra í föronum nema þegar rignir. Þótt ég keyri í förum þá tekur hann sammt þessa rikki hingað og þangað. Það eru undir honum 225/55/R16 Bílinn fer í hjólastillingu fljótlega. Ef það dugar ekki með hverju mæla menn að ég geri? Fá mér mjórri dekk 205 kannski? staðinn fyrir 225 Eitt enn. Hvar er best að versla felgur undir bmw? Þakkir. Ragnar |
Author: | gardara [ Sun 19. Oct 2008 05:36 ] |
Post subject: | |
Eru þetta bara rykkir? Er enginn víbríngur í stýrinu? |
Author: | Angelic0- [ Sun 19. Oct 2008 05:51 ] |
Post subject: | |
fóðringar.... |
Author: | jon mar [ Sun 19. Oct 2008 11:08 ] |
Post subject: | |
Ég hef nú bara of orðið var við þetta. Skánaði ekki þegar ég fór á breiðari dekk, 235/45r17, var líka svona á 225/45r17 sem ég notaði áður. Tók aldrei eftir þessu á vetrardekkjunum þegar ég notaði svoleiðis.... 195/60r15. Held að þetta hafi mikið með low offset felgur og dekkjabreidd að gera, sem gerir það að verkum að bíllinn passar ekki lengur í förinn í samræmi við örmjóa asíu skrjóða sem smíðuðu förin. Allavega er ekki hægt að kenna slithlutum í hjólabúnaði um hjá mér.... allt nýtt sem hugsast getur. |
Author: | Ragnar [ Sun 19. Oct 2008 13:14 ] |
Post subject: | |
Nei það er enginn víbringur í stýri. Bíllinn tekur svona stefnubreytingar, sem dæmi er ég kannsi í ártúnsbrekkuni, slakur svo tekur bíll allt í einu smá svona hnikk til vinstri eða hægri. Það fer eftir hvorumeginn ég er á milli línana. Jú flest för eru eftir mjórri dekk. Ég átti einu sinni lexus sem var á 205/55/r16 heilsárs aldrei nein vandamál. Bmwinn minn þarf sammt alvarlega að fara í hjólastillingu. Er að beygja til vinstri til að fara beint og ef ég rétti úr því fer ég til hægri. Fer í stillingu í næstu viku. Tók sammt eftir einu þegar Vw var að kynna golfinn hér á landi. Ég labbaði um planið hjá kolaportinu og sá að allir bílarnir voru á 205/55/r16 nema Phaeton og Toureg ![]() Ég skoða þetta betur. höfuðborgarsvæðið er eini staðurinn á landinu þar sem eru svona mikið um för og ég er að flytja eins langt frá reykjavík og hægt er þannig þetta mun kannski ekkert sérlega trufla mig. |
Author: | JonHrafn [ Sun 19. Oct 2008 13:17 ] |
Post subject: | |
Lenti í þessu með minn á 245/40/17 að aftan 225/45/17 að framan Afturdekkin voru "ónýt" miðjan á þeim mynsturlaus. Hef notað 225/45/17 allan hringin síðan, gróf heilsársdekk. Ekki fundið fyrir þessu síðan. Verður fróðlegt að prufa ný dekk næsta vor 245 og 225. Grunar að haugslitin afturdekk hafi verið að valda þessu. |
Author: | Höfuðpaurinn [ Mon 20. Oct 2008 14:23 ] |
Post subject: | |
þú getur skipt út öllu í hjóla og stýrisbúnaði sem þér dettur í hug án þess að leysa þetta, þetta er bara dekkjabreiddin sem veldur þessu. Ég átti E34 og á 225/55/16 þá var hann svona, þegar vetrardekkin fóru undir, 205 eða 215, þá var allt í góðu, sömu felgur, ekkert gert nema skipta um dekk. Annað dæmi, að vísu E46, og á 17", var á misbreiðum dekkjum framan/aftan, sett var allt jafn stórt allan hringinn og þá varð hann svona líka. |
Author: | Ragnar [ Mon 20. Oct 2008 19:03 ] |
Post subject: | |
já ég hef gert upp hug minn. 205/55R16 verður fyrir valinu. Einhverjar 5 arma felgur og ein undir varadekk. Ég á felgu sem er með 225/55R16 á en passar 205 á þá felgu. |
Author: | Turbo- [ Mon 20. Oct 2008 19:08 ] |
Post subject: | |
ég lendi í þessu alltaf er á 215 að framan og 235 að aftan skánar smá þegar ég er á vetrardekkjunum sem eru 205 á breidd |
Author: | Ragnar [ Mon 20. Oct 2008 19:16 ] |
Post subject: | |
Jám svona er þetta. En ég var að komast að því að það er ekki hægt að kaupa staka felgu ![]() En þessa hafði ég í huga? Hvað finnst fólki. Ég hef átt svona felgur áður sem ég seldi með bíl. |
Author: | Mánisnær [ Mon 20. Oct 2008 19:21 ] |
Post subject: | |
Sleppur ef þetta eru mjög ódýrar felgur, annars tæki eg nú eitthvað fallegra. Style 5's eru auðvitað klassíkar undir 540 ![]() |
Author: | ömmudriver [ Mon 20. Oct 2008 20:14 ] |
Post subject: | |
Ragnar wrote: Jám svona er þetta. En ég var að komast að því að það er ekki hægt að kaupa staka felgu
![]() En þessa hafði ég í huga? Hvað finnst fólki. Ég hef átt svona felgur áður sem ég seldi með bíl. Þessar felgur passa ekki við E34 ![]() |
Author: | Angelic0- [ Mon 20. Oct 2008 20:43 ] |
Post subject: | |
Ég ætla að skjóta á fóðringar ef að þetta gengur ekki upp.... ![]() |
Author: | gardara [ Mon 20. Oct 2008 23:30 ] |
Post subject: | |
Mánisnær wrote: Sleppur ef þetta eru mjög ódýrar felgur, annars tæki eg nú eitthvað fallegra.
Style 5's eru auðvitað klassíkar undir 540 ![]() Og throwing stars! ![]() |
Author: | Lindemann [ Tue 21. Oct 2008 00:32 ] |
Post subject: | |
Ég á 4 stk 5 arma 16" borbet felgur undan e34, getur örugglega fengið þær ef þú vilt. mynd af þeim hérna: http://myndasafn.bmwkraftur.is/d/12326-2/bmw530i+2402+020.jpg |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |