bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Rafmagnslaus X5 - árg 2000
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=32369
Page 1 of 2

Author:  Stanky [ Fri 10. Oct 2008 15:07 ]
Post subject:  Rafmagnslaus X5 - árg 2000

Sælir/ar.

Mamma á þarna einhvern X5. Hún gleymdi ljósunum á.

Er óhætt að gefa honum start með öðrum bíl?

Á ég frekar að taka geyminn úr og hlaða hann?

Hvar er geymirinn? :) (úúúú)

Kveðja,
Haukur

Author:  Berteh [ Fri 10. Oct 2008 15:10 ]
Post subject: 

Geymirinn er í skottinu undir varadekkinu, þarft að taka varadekkið upp og losa bracket frá til að komast að honum almennilega

Author:  ömmudriver [ Fri 10. Oct 2008 15:40 ]
Post subject: 

Taktu rafgeymirinn úr og hlaðaðu hann þannig ef þú villt gera þetta rétt, en ef þú villt taka sénsinn á að grilla tölvu/skynjara þá skaltu bara gefa honum start með köplum úr öðrum bíl en hafðu kveikt á eins mikð af dóti og hægt er áður en að þú startar bílnum með köplum. S.s hafðu miðstöðina á full blast, kveikt á afturrúðuhitanum og svo framvegis til þess að minnka sjokkið fyrir tölvurnar/skynjarana.

Author:  Stanky [ Fri 10. Oct 2008 15:41 ]
Post subject: 

ömmudriver wrote:
Taktu rafgeymirinn úr og hlaðaðu hann þannig ef þú villt gera þetta rétt, en ef þú villt taka sénsinn á að grilla tölvu/skynjara þá skaltu bara gefa honum start með köplum úr öðrum bíl en hafðu kveikt á eins mikð af dóti og hægt er áður en að þú startar bílnum með köplum. S.s hafðu miðstöðina á full blast, kveikt á afturrúðuhitanum og svo framvegis til þess að minnka sjokkið fyrir tölvurnar/skynjarana.


Takk fyrir þetta.

Ég held að ég kippi bara geyminum úr.

Veistu hvað það þarf að hlaða svona geyma lengi ?

Author:  Angelic0- [ Fri 10. Oct 2008 15:42 ]
Post subject: 

ömmudriver wrote:
Taktu rafgeymirinn úr og hlaðaðu hann þannig ef þú villt gera þetta rétt, en ef þú villt taka sénsinn á að grilla tölvu/skynjara á skaltu bara gefa honum start með köplum úr öðrum bíl en hafðu kveikt á eins mikð af dóti og hægt er áður en að þú startar bílnum með köplum. S.s hafðu miðstöðina á full blast, kveikt á afturrúðuhitanum og svo framvegis til þess að minnka sjokkið á fyrir tölvurnar/skynjarana.


Eða bara sleppa því að hafa kveikt á bílnum sem að gefur start....

þá er sjokkið bara það sama og að setja geymirinn í samband...

byrja á að setja kaplana á þannig... ef að það virkar ekki að setja í gang svoleiðis þá má setja startgjafann í gang...

vertu bara viss um að vera með kapla sem að flytja nóg...

Author:  ömmudriver [ Fri 10. Oct 2008 15:50 ]
Post subject: 

Stanky wrote:
ömmudriver wrote:
Taktu rafgeymirinn úr og hlaðaðu hann þannig ef þú villt gera þetta rétt, en ef þú villt taka sénsinn á að grilla tölvu/skynjara þá skaltu bara gefa honum start með köplum úr öðrum bíl en hafðu kveikt á eins mikð af dóti og hægt er áður en að þú startar bílnum með köplum. S.s hafðu miðstöðina á full blast, kveikt á afturrúðuhitanum og svo framvegis til þess að minnka sjokkið fyrir tölvurnar/skynjarana.


Takk fyrir þetta.

Ég held að ég kippi bara geyminum úr.

Veistu hvað það þarf að hlaða svona geyma lengi ?


Það fer eftir því hvað geymirinn er margar amperstundir(Ah) og hvað hleðslutækið hleður mikið/hratt en það á að koma fram á mæli á tækinu hversu mikið það er að hlaða.

Viktor jú þetta gæti virkað sem að þú ert að tala um en það hefur ekki virkað þegar ég hef prufað það :?

Author:  íbbi_ [ Fri 10. Oct 2008 15:53 ]
Post subject: 

aðferðin sem viktor talar um er rétta aðferðin, tengja yfir í bíl og hafa dautt á gjafanum

Author:  ömmudriver [ Fri 10. Oct 2008 15:56 ]
Post subject: 

íbbi_ wrote:
aðferðin sem viktor talar um er rétta aðferðin, tengja yfir í bíl og hafa dautt á gjafanum


Ertu að segja mér að aðferðin sem að ég tala um sé þá röng ?

Author:  Angelic0- [ Fri 10. Oct 2008 16:12 ]
Post subject: 

ömmudriver wrote:
íbbi_ wrote:
aðferðin sem viktor talar um er rétta aðferðin, tengja yfir í bíl og hafa dautt á gjafanum


Ertu að segja mér að aðferðin sem að ég tala um sé þá röng ?


Nei, alls ekki...

Auðvitað er réttast að hlaða geymir til fulls...

Hitt er bara fljótlegra ;)

Author:  Stanky [ Sun 12. Oct 2008 16:26 ]
Post subject: 

Jæja snillar.

Þetta virkaði. Tók geyminn úr bara og hlóð hann.

Allt gott með það.

Núna sýnir hann þrjú fögur ljós í mælaborðinu. ABS, Bremsudót og DSC..... er einhver leið til þess að losna við þetta drasl án þess að borga einhvern 10.000 kr í B&L ?

Kveðja,
Haukur

Author:  Angelic0- [ Sun 12. Oct 2008 16:27 ]
Post subject: 

Stanky wrote:
Jæja snillar.

Þetta virkaði. Tók geyminn úr bara og hlóð hann.

Allt gott með það.

Núna sýnir hann þrjú fögur ljós í mælaborðinu. ABS, Bremsudót og DSC..... er einhver leið til þess að losna við þetta drasl án þess að borga einhvern 10.000 kr í B&L ?

Kveðja,
Haukur


Ef að það er ekkert að bílnum skaltu fara í TB bara og borga 3k fyrir að láta hreinsa villuboð ;)

Author:  Stanky [ Sun 12. Oct 2008 16:43 ]
Post subject: 

Angelic0- wrote:
Stanky wrote:
Jæja snillar.

Þetta virkaði. Tók geyminn úr bara og hlóð hann.

Allt gott með það.

Núna sýnir hann þrjú fögur ljós í mælaborðinu. ABS, Bremsudót og DSC..... er einhver leið til þess að losna við þetta drasl án þess að borga einhvern 10.000 kr í B&L ?

Kveðja,
Haukur


Ef að það er ekkert að bílnum skaltu fara í TB bara og borga 3k fyrir að láta hreinsa villuboð ;)


Það var að minnsta kosti ekkert að bílnum áður en hann varð rafmagnslaus.... er enginn sem á svona búnað sem getur endurræst þessu ? :)

Er þetta alveg eðlilegt? Að þessi ljós logi þegar bíllinn verður rafmagnslaus? Afhverju er þetta svona?

Author:  Berteh [ Sun 12. Oct 2008 17:07 ]
Post subject: 

Mín reynsla af þessum bílum er að þegar rafmagnið er lítið slekkur hann á "non essential" kerfum þessi ljós ættu að hverfa eftir smá stund í keyrslu þegar hleðslan er orðin næg

Author:  Saxi [ Sun 12. Oct 2008 17:23 ]
Post subject: 

Hef margsinnis lent í rafmagnslausum X5

Er búið að keyra bílinn eitthvað eftir að hann fór í gang. Mín reynsla er nefnilega sú að eftir fárra metra akstur hafa þessi ljós slokknað. Samkvæmt El manuel er þetta eðlilegt.

Kveðja

Author:  Stanky [ Sun 12. Oct 2008 17:41 ]
Post subject: 

Saxi wrote:
Hef margsinnis lent í rafmagnslausum X5

Er búið að keyra bílinn eitthvað eftir að hann fór í gang. Mín reynsla er nefnilega sú að eftir fárra metra akstur hafa þessi ljós slokknað. Samkvæmt El manuel er þetta eðlilegt.

Kveðja


Frábært... takk kærlega fyrir þetta :)

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/