bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Topplúgan er biluð OG HÚN ER OPIN! https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=32239 |
Page 1 of 1 |
Author: | Mánisnær [ Fri 03. Oct 2008 18:04 ] |
Post subject: | Topplúgan er biluð OG HÚN ER OPIN! |
Jebb, opin upp á gátt + miðstöðin mín virkar skít lélega og hitinn í sætunum virkar ekki. Þetta er hryllilegt! Þarf að fá hjálp við einhverju af þessu, helst með að laga topplúguna ![]() Kv. Máni |
Author: | Jónas Helgi [ Fri 03. Oct 2008 18:24 ] |
Post subject: | |
Láttu kremja þennan e36, fáðu þér e46 og vertu soldið nýmóðins ![]() |
Author: | Mánisnær [ Fri 03. Oct 2008 18:28 ] |
Post subject: | |
Já ég sakna soldið 330, en ég sakna ekkert að borga af honum Fint að vera á skuldlausum kreppubeater. Þrátt fyrir ýmislegt sem er að ![]() |
Author: | Danni [ Fri 03. Oct 2008 18:44 ] |
Post subject: | |
Það á að vera sexkanntur í verkfærasettinu í skottinu sem er svona neyðartól ef að topplúgumótorinn bilar. Þú átt að geta tekið frá lokið í þakinu og lokað topplúgunni manual með þessum sexkannti. Ef að hann er ekki til staðar þá bara finna sexkannt sem að passar í topplúgumótorinn og loka topplúgunni ![]() Vona að þetta hjálpar, hjálpaði mér mikið þegar topplúgan gaf sig í gamla E39 bílnum mínum. |
Author: | Mánisnær [ Fri 03. Oct 2008 19:04 ] |
Post subject: | |
Takk! Þetta svínvirkaði, er þetta s.s. að öllum likinum mótorinn sem er farinn? Kv. |
Author: | íbbi_ [ Fri 03. Oct 2008 23:26 ] |
Post subject: | |
mældu bara hvort hann sé að fá rafmagn, ef hann er ekki að fá rafmagn þá er það bara að finna út af hverju og svo framvegis, en annars jú myndi maður athuga fyrst með mótorinn, og öryggi/relay |
Author: | Mánisnær [ Sat 04. Oct 2008 16:16 ] |
Post subject: | |
Sko, núna virkar lúgan, en þegar ég opna hana alveg upp á gátt þá festist hún, er þetta þá sleðin eða álíka sem er eitthvað að bögga mig? |
Author: | Tommi Camaro [ Sun 05. Oct 2008 22:05 ] |
Post subject: | |
Mánisnær wrote: Sko, núna virkar lúgan, en þegar ég opna hana alveg upp á gátt þá festist hún, er þetta þá sleðin eða álíka sem er eitthvað að bögga mig?
![]() ![]() ![]() |
Author: | Mánisnær [ Sun 05. Oct 2008 22:17 ] |
Post subject: | |
Segðu mér bara hvernig ég get lagað þetta Tommi minn! |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |