bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E34 Þokuljós hættu að virka https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=32011 |
Page 1 of 2 |
Author: | kristofervv [ Sun 21. Sep 2008 16:43 ] |
Post subject: | E34 Þokuljós hættu að virka |
Sælir, er með 525 1992 og er buinn að setja xenon í aðaljósin og þokuljósin. Ætlaði að kveikja á þokuljosunum og það kviknaði á hvorugu þeirra :S Rofinn virkar þar sem að þokuljos að aftan koma , og þokuljosa ljosið kemur í mælaborðið. Er ekki líklegra að öryggi eða eitthvað sé farið heldur en báðir xenon magnararnir í einu ? Og hvar eru öryggin og númerið fyrir þokuljosin? Sé samt ekki neitt í tölvunni um að þokuljosin virki ekki |
Author: | ömmudriver [ Sun 21. Sep 2008 16:46 ] |
Post subject: | |
Byrjaðu nú á því að athuga öryggi, tengingar og svissa mögnurunum ![]() |
Author: | kristofervv [ Sun 21. Sep 2008 16:54 ] |
Post subject: | |
Já, en hvað er öryggja numerið fyrir þokuljósin? |
Author: | ömmudriver [ Sun 21. Sep 2008 16:58 ] |
Post subject: | |
kristofervv wrote: Já, en hvað er öryggja numerið fyrir þokuljósin?
Það má Guð vita, það á nú að standa í lokinu á öryggja boxinu og mig minnir að þau sé nr. 11 og 12 annars getur þú bara rennt yfir öll öryggin og athugað hvort að það sé eitthvað af þeim sprungið, tekur ekki nema skotstund ![]() |
Author: | kristofervv [ Sun 21. Sep 2008 17:00 ] |
Post subject: | |
Er þá sér öryggi bara fyrir þokuljósin? Því öll önnur ljós virka, hef heyrt að þetta gæti verið LKM stykkið ? |
Author: | Einarsss [ Sun 21. Sep 2008 17:03 ] |
Post subject: | |
sennilega öryggi farið ... þarft venjulega að setja stærra öryggi í bílinn þegar þú setur xenon í |
Author: | Jón Ragnar [ Sun 21. Sep 2008 17:04 ] |
Post subject: | |
Þetta er bara Guð að segja þér að xenon í köstururum er satanískt |
Author: | ömmudriver [ Sun 21. Sep 2008 17:06 ] |
Post subject: | |
einarsss wrote: sennilega öryggi farið ... þarft venjulega að setja stærra öryggi í bílinn þegar þú setur xenon í
BINGÓ!! Ég setti 15A öryggi fyrir aðalljósin í OZ og þau eru með sitthvort öryggið, ég var að ruglast ![]() ![]() |
Author: | kristofervv [ Sun 21. Sep 2008 17:16 ] |
Post subject: | |
já, kíki á öryggin á eftir vonandi er þetta bara það ![]() |
Author: | kristofervv [ Sun 21. Sep 2008 17:21 ] |
Post subject: | |
minnir mig á eitt, bakkljósin virkuðu aldrei á bílnum, en leið og þokuljósin duttu út þá byrjaði bakkljósið að koma :S Gæti verið eitthvað tengt þarna á milli ? |
Author: | Angelic0- [ Sun 21. Sep 2008 17:26 ] |
Post subject: | |
Gamli bíllinn hans Loga / Hlyns ![]() Allavega þá hlýtur LKM gaurinn að vera að feila, ég á auka svona ef að það er málið... |
Author: | kristofervv [ Sun 21. Sep 2008 17:28 ] |
Post subject: | |
já, þetta er þeirra bíll, er þetta lkm bara að smella úr og í ? og ef það er svoleiðis mætti ég próa að svissa á milli og chekka hvort það sé það ? |
Author: | Angelic0- [ Sun 21. Sep 2008 17:31 ] |
Post subject: | |
kristofervv wrote: já, þetta er þeirra bíll, er þetta lkm bara að smella úr og í ? og ef það er svoleiðis mætti ég próa að svissa á milli og chekka hvort það sé það ?
Já, þetta er bara kubbur sem að er smellt úr og í... já, mátt alveg prófa hann.... 6174080, ég er samt í keflavík... |
Author: | kristofervv [ Sun 21. Sep 2008 17:34 ] |
Post subject: | |
já, en eru ekki líka öryggin sem geta verið að stríða mér ? vantar numerið fyrir öryggið á þokuljosunum |
Author: | Angelic0- [ Sun 21. Sep 2008 17:35 ] |
Post subject: | |
kannaðu bara öll öryggin í boxinu, Xenon þarf 15A sitthvoru megin, sum kerfi 20A.. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |