bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Slag í stýri. https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=31955 |
Page 1 of 1 |
Author: | UnnarÓ [ Thu 18. Sep 2008 20:53 ] |
Post subject: | Slag í stýri. |
Þegar ég er að keyra þá tek ég eftir því að bílinn byrjar sjálfkrafa að beygja pínu lítið í til hægri eða vinstri, semsagt ég þarf að leiðrétta stefnu bílsins af og til, mjög pirrandi í hjólförum og á 70km+. Ég var eiginlega búinn að venjast þessu en mér finnst eins og þetta hafi versnað uppá síðkastið. Þetta er semsagt eins og massíft slag í stýrinu. Dekkin eru ekkert misslitin, spyrnur og fóðringar eru í fínu standi var mér tjáð. Var búinn að skoða eitthvað á bimmerforums og þar var talað um að algeng ástæða fyrir slagi í stýri á E34 væri laus einhver ró í stýrisganginum, ég athugaði hana og hún var pikkföst. Gæti þetta þá ekki verið stýrismaskínan að faila? Er þetta eitthvað fyrir leikmann að krukka í? S.s. einhvern sem hefur ekki aðgang að lyftu/gryfju. Er ekki til einhver ódýr lausn á þessu, ég er orðinn þreyttur á að horfa á eftir 5000 köllunum fjúka í þennan bíl ![]() ..og ef einhver veit um leið til þess að ná sviss úr bílnum sem ekki er hægt að ná út með hefðbundna ráðinu má endilega láta ljós sitt skína hér ![]() |
Author: | ömmudriver [ Thu 18. Sep 2008 21:20 ] |
Post subject: | |
Ertu búinn að athuga millibilsstöngina, svo er spurning með hann pitman? |
Author: | Mazi! [ Thu 18. Sep 2008 21:23 ] |
Post subject: | |
hefuru athugað þetta ? ónítir stýrisendar, hjólastilla, réttur loftþrýstingur í dekkjum ? |
Author: | UnnarÓ [ Thu 18. Sep 2008 21:37 ] |
Post subject: | |
ömmudriver wrote: Ertu búinn að athuga millibilsstöngina, svo er spurning með hann pitman? Nei, þyrfti að athuga þetta, hvað er enska heitið yfir millibilsstöng? Mazi! wrote: hefuru athugað þetta ? ónítir stýrisendar, hjólastilla, réttur loftþrýstingur í dekkjum ?
Loftþrýstingurinn er góður, en ég hef ekki athugað stýrisendana né látið hjólastilla hann. Gæti svona ruddalegt slag lagast einungis með hjólastillingu? Stýrið er ekkert að kippast til, þetta er meira eins og dekkin séu að beygja án nokkurs samráðs við stýrisganginn. |
Author: | Dóri- [ Thu 18. Sep 2008 21:42 ] |
Post subject: | |
Hvað með flexpúðann á stýrinu ? |
Author: | ömmudriver [ Thu 18. Sep 2008 21:46 ] |
Post subject: | |
Millibilsstöngin heitir tie rod, center og er nr.9, pitman er nr. 10: http://www.realoem.com/bmw/showparts.do?model=HD51&mospid=47375&btnr=32_0334&hg=32&fg=25 |
Author: | birkire [ Thu 18. Sep 2008 22:14 ] |
Post subject: | |
Þó maður geti ekki séð jack shit hvort stýrisupphengjan sé að klikka gæti það verið, ég er með 7km slag í stýrinu og frumherji setti bara útá hana(þó að allt annað sé í döðlum ![]() Kallast idler arm bushing |
Author: | Einarsss [ Thu 18. Sep 2008 22:15 ] |
Post subject: | |
Hef heyrt þetta kallað "dauðaslagið" Ekki beint gaman ef þetta myndi detta úr sambandi þegar þú á síst von á því, myndi hiklaust láta kíkja á þetta |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |