Page 1 of 1
olía á sjálfskiptingu

Posted:
Mon 27. Oct 2003 22:16
by Gardar
Veit einhver hvaða sjálfskiptiolíu er best að nota? Er nokkuð' einhver olíu sía á sjálfskiptingunni á 750 e32? (nú spyr ég bara eins og fáfróð kona (eins og konan mín orðar það))

Posted:
Mon 27. Oct 2003 22:36
by saemi
það eru síur á öllum skiptingum (eftir minni bestu vitund), allaveg á 750i.
Sæmi

Posted:
Mon 27. Oct 2003 22:55
by Dr. E31
Notaðu einhverja háhitaþolna gerviolíu t.d. ESSO ATF LDS eða ESSO ATF LT (Life Time).
Eða bara panta tíma hjá B&L og láta þá um þetta, ég geri það. Í Inspection II er skippt um ALLA vökva á bílnum, mjög sniðugt að gera það bara.

Posted:
Mon 27. Oct 2003 23:10
by Bjarki
Held þú eigir að nota olíu sem heitir Dexron III þ.e. uppfyllir þann staðal eða hvað þetta er, til frá mörgum framleiðendum.
Svo þarftu að skipta um síu og þéttilista.
Þegar þú "drain'ar" sjálfskiptinguna þá verður alltaf smá eftir. Sumir fylla þær nokkrum sinnum til að fá alveg hreinan vökva á skiptinguna. Þetta lagar oft skiptingar sem eru orðnar eitthvað skrýtnar, hef reyndar bara lesið um þetta. Aldrei gert þetta sljálfur.
Þegar þú mælir vökvan á sjálfskiptingunni þá áttu líka að hafa kveikt á bílnum og láta hann standa á jafnsléttu.

Posted:
Tue 28. Oct 2003 21:22
by Gardar
en hvar er þessi sía? sér maður hana þegar maður er kominn undir bílinn? ( stendur í gryfju undir honum)

Posted:
Tue 28. Oct 2003 21:34
by saemi
Hún er fyrir innan pönnuna, þarft að taka hana undan.
Sæmi

Posted:
Tue 28. Oct 2003 21:38
by Gardar
Ég þakka fyrir aðstoðina. Ég skoða þetta. og ef ég treysti mér ekki í þetta þá læt ég bara bróðir minn gera þetta.