bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Get ekki kveikt á bílnum
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=31818
Page 1 of 2

Author:  UnnarÓ [ Fri 12. Sep 2008 11:12 ]
Post subject:  Get ekki kveikt á bílnum

Var að drullast í skólann rétt í þessu og sný lyklinum í svissinum og það er eins og ég geti ekki snúið lyklinum alla leið, sama hvað ég reyni. Ég get snúið honum þannig að það kvikni á rafmagninu öllu en þegar ég sleppi þá slokknar á öllu.
Svo ætla ég að kippa lyklinum úr þá er hann pikkfastur í skránni ég rétt náði honum aftur úr með einhverjum djöflagangi. Reyndi aftur og sama sagan.
Veit einhver hvað er í gangi?
Skjót svör óskast, á eiginlega að vera mættur í skólann :x

Author:  gardara [ Fri 12. Sep 2008 11:29 ]
Post subject: 

hef lent í svipuðu, reyndar á VW golf.. en þá þurfti ég að rykkja stýrinu til hliðar um leið og ég snéri lyklinum í skránni... Það þarf þó alls ekkert að vera það sama og er að hjá þér....

Author:  UnnarÓ [ Fri 12. Sep 2008 11:32 ]
Post subject: 

gardara wrote:
hef lent í svipuðu, reyndar á VW golf.. en þá þurfti ég að rykkja stýrinu til hliðar um leið og ég snéri lyklinum í skránni... Það þarf þó alls ekkert að vera það sama og er að hjá þér....

Hefur þá ekki bara stýrilásinn læst sér? Hélt að það hefði fyrst gerst hjá mér en það er greinilega ekki málið, er búinn að rykkja og kippa en ekkert gengur.

Author:  gardara [ Fri 12. Sep 2008 11:34 ]
Post subject: 

UnnarÓ wrote:
gardara wrote:
hef lent í svipuðu, reyndar á VW golf.. en þá þurfti ég að rykkja stýrinu til hliðar um leið og ég snéri lyklinum í skránni... Það þarf þó alls ekkert að vera það sama og er að hjá þér....

Hefur þá ekki bara stýrilásinn læst sér? Hélt að það hefði fyrst gerst hjá mér en það er greinilega ekki málið, er búinn að rykkja og kippa en ekkert gengur.


Jú mikið rétt, stýrislásinn.. Mundi ekki rétta orðið

Author:  Tommi Camaro [ Fri 12. Sep 2008 11:35 ]
Post subject: 

þarft að kaupa þér nýja sviss

Author:  Geirinn [ Fri 12. Sep 2008 11:38 ]
Post subject: 

VEISTU hvað þú getur SPARAÐ þér mikið á því að nota STRÆTÓ ?

Author:  gardara [ Fri 12. Sep 2008 11:55 ]
Post subject: 

Geirinn wrote:
VEISTU hvað þú getur SPARAÐ þér mikið á því að nota STRÆTÓ ?


Kannski gott fyrir budduna að fara í strætó... En ekki sálina...

Author:  UnnarÓ [ Fri 12. Sep 2008 11:59 ]
Post subject: 

Er ekki einhver krimmi hérna sem getur kennt mér að tengja framhjá, ég þarf að nota bílinn :lol:

Author:  BirkirB [ Fri 12. Sep 2008 12:08 ]
Post subject: 

Ég veit um e34 sem var með sviss vesen...þetta var víst einhver framleiðslugalli í einhverjum e34.

Author:  gardara [ Fri 12. Sep 2008 12:13 ]
Post subject: 

UnnarÓ wrote:
Er ekki einhver krimmi hérna sem getur kennt mér að tengja framhjá, ég þarf að nota bílinn :lol:


Hljóta að vera til fullt af leiðbeiningum um hot wiring á youtube...

Author:  gstuning [ Fri 12. Sep 2008 12:16 ]
Post subject: 

Ferð ekki langt ef stýrið er fast í lás.

annars væri nóg að kippa rafmagstenginu af svissinum og tengja þar
ef þú getur hreyft stýrið og sett á ON þá væri nóg að shorta vírnum sem er í hringlótta tenginu í húddinu. Svartur/Gulur vír , tengja í hann 12v. ;)

Author:  UnnarÓ [ Fri 12. Sep 2008 12:21 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
Ferð ekki langt ef stýrið er fast í lás.

annars væri nóg að kippa rafmagstenginu af svissinum og tengja þar
ef þú getur hreyft stýrið og sett á ON þá væri nóg að shorta vírnum sem er í hringlótta tenginu í húddinu. Svartur/Gulur vír , tengja í hann 12v. ;)

Hvernig tengi ég í hann 12v? Þarf ég ekki einhverja græju í þetta? :oops:

Author:  ///M [ Fri 12. Sep 2008 14:32 ]
Post subject: 

Ekki vera með þessa vitleysu, getur lent í að stýrið fari í lás og þú straujar yfir eitthvað lið...

Author:  Alpina [ Fri 12. Sep 2008 14:36 ]
Post subject: 

///M wrote:
Ekki vera með þessa vitleysu, getur lent í að stýrið fari í lás og þú straujar yfir eitthvað lið...



BINGO :shock: :shock:

Author:  Axel Jóhann [ Fri 12. Sep 2008 14:38 ]
Post subject: 

Ég á til sviss í e34 og lykil.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/