bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

skipta út ljósum í mælaborði
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=31800
Page 1 of 1

Author:  Misdo [ Thu 11. Sep 2008 01:50 ]
Post subject:  skipta út ljósum í mælaborði

hvar og hvað myndi kosta að láta skipta út ljósunum í mælaborðinu hjá sér perurnar eru orðnar svo slappar og svo er ein sprungin

eða er kanski ekkert mál að gera þetta sjálfur ?

Author:  Danni [ Thu 11. Sep 2008 03:57 ]
Post subject: 

Það er ekkert mál að gera þetta sjálfur!

Hérna er sýnt hvernig á að taka mælaborðið úr:
http://rides.webshots.com/album/219881572pOuUKG

Losar bara 2 skrúfur. Það er reyndar auðveldara að taka það úr ef stýrið er tekið af, en það er samt óþarfi. Ég teki alltaf stýrið af samt svo ég veit ekki hversu þröngt plássið er þarna...

En svo er þetta bara barnaleikur að skipta um perurnar... svo lengi sem þú ert með réttu perurnar tilbúnar hehe

Author:  Misdo [ Thu 11. Sep 2008 09:37 ]
Post subject: 

ahh takk fyrir þetta þá reyni ég þetta bara sjálfur hvar kaupir maður perur í þetta ?

og hvað heita þær ? :)

Author:  Höfuðpaurinn [ Thu 11. Sep 2008 10:00 ]
Post subject: 

það er lítið mál að kippa mælaborðinu úr án þess að taka stýrið í burtu,
ég hef gert þetta á þennan hátt:
losa skrúfurnar og ná því fram í stýrið,
taka plöggin úr sambandi,
láta efsta partinn stingast inn í stýrið,
snú svo stýrinu til vinstri og þá rennur það niður.

og svo bara öfug röð við að koma því í aftur.

Author:  birkire [ Thu 11. Sep 2008 10:43 ]
Post subject: 

Misdo wrote:
ahh takk fyrir þetta þá reyni ég þetta bara sjálfur hvar kaupir maður perur í þetta ?

og hvað heita þær ? :)


Bara fara með allar gömlu í gamla bílanaust/n1 á höfðanum og bera saman við nýjar perur í rekkanum þar.

Author:  JOGA [ Thu 11. Sep 2008 13:16 ]
Post subject: 

Gerði þetta í fyrradag og þetta tók ekki nema örfáar mín. Eins og komið hefur fram þarf ekki að taka stýrið úr. Losar bara skrúfurnar og nærð því úr með smá þolinmæði.

Author:  Misdo [ Thu 11. Sep 2008 14:56 ]
Post subject: 

hvað eru menn að nota í staðinn fyrir þetta tannlæknasett ?

Author:  Misdo [ Thu 11. Sep 2008 22:54 ]
Post subject: 

búinn að gera þetta þetta er ekkert ma´l :)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/