bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Gírkassa vesen
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=31777
Page 1 of 1

Author:  arnibjorn [ Wed 10. Sep 2008 11:35 ]
Post subject:  Gírkassa vesen

Sælir sérfræðingar,

Er einhver hérna sem hefur skipt um gírkassa í E36 325??

Ég var með getrag gírkassa og 2. gírinn brotnaði og ég fann bara zf gírkassa þannig að ég skellti mér á einn þannig.

Mér var sagt að hann ætti að passa og ég spurði líka á erlendu spjallborði og þeir staðfestu að hann ætti að passa en ég gæti þurft að breyta drifskaftinu eitthvað.

Þannig að ég fékk zf gírkassa og drifskaft með honum..

Þegar ég reif svo getrag gírkassan úr og bar hann saman við zf þá virtust þeir alveg eins langir, boltagötin á sama stað og ekkert sem ætti að koma í veg fyrir að hann myndi passa.

Síðan þegar kem ég honum á vélina en þá munar svona 1-2cm uppá að það væri hægt að festa hann.. hann bara VILDI EKKI fara nær vélinni.. sama hversu vel lúbaður hann var.

Dettur ykkur eitthvað í hug hvað málið gæti verið??

Ég og Einar Óli vorum að þessu og skildum ekki neitt.. endaði á að við vorum báðir orðnir svo pirraðir að við hættum :lol:
Vorum þá búnir að taka kassan úr og setja aftur í svona 3 sinnum!

Öll ráð VEL þegin :)

mbk

Árni

Author:  Steinieini [ Wed 10. Sep 2008 11:44 ]
Post subject: 

Við jónki lentum í svipuðu um daginn með kassann á mínum.

Vorum að troða og djöflast með öllum kröftum og hann vildi ekki nær, svo kom einar til að leysa annan hvorn okkar af og lyfti undir hann með aðeins öðru átaki og þá small hann að !

gæti gengið ef þú færð einar til að vera á svæðinu :lol:

Author:  Tommi Camaro [ Wed 10. Sep 2008 11:53 ]
Post subject: 

drama queens ,

Author:  arnibjorn [ Wed 10. Sep 2008 11:54 ]
Post subject: 

Steinieini wrote:
Við jónki lentum í svipuðu um daginn með kassann á mínum.

Vorum að troða og djöflast með öllum kröftum og hann vildi ekki nær, svo kom einar til að leysa annan hvorn okkar af og lyfti undir hann með aðeins öðru átaki og þá small hann að !

gæti gengið ef þú færð einar til að vera á svæðinu :lol:


Ég var með Einar á svæðinu.. spurning um að fá annan Einar... :lol:

Tveir Einarar og einn Árni ættu að redda þessu, hinn Einarinn var meirað segja búinn að bjóða mér og Einari hjálp :drunk:

Author:  arnibjorn [ Wed 10. Sep 2008 11:55 ]
Post subject: 

Tommi Camaro wrote:
drama queens ,


Nennir þú ekki að koma og hjálpa okkur??

Þú tekur svo ógeðslega mikið í bekk að þú hlýtur að geta ýtt kassanum nær vélinni er það ekki?

Author:  Stefan325i [ Wed 10. Sep 2008 13:14 ]
Post subject: 

arnibjorn wrote:
Tommi Camaro wrote:
drama queens ,


Nennir þú ekki að koma og hjálpa okkur??

Þú tekur svo ógeðslega mikið í bekk að þú hlýtur að geta ýtt kassanum nær vélinni er það ekki?



hahahahahahahahaha :P

Author:  Tommi Camaro [ Wed 10. Sep 2008 15:26 ]
Post subject: 

arnibjorn wrote:
Tommi Camaro wrote:
drama queens ,


Nennir þú ekki að koma og hjálpa okkur??

Þú tekur svo ógeðslega mikið í bekk að þú hlýtur að geta ýtt kassanum nær vélinni er það ekki?

gæti nú alveg komið, En ég.



vill ekki ýta kraminu úr bílnum þínum gæti líka runið til og endað í andlitinu á þér :lol:

Author:  Alpina [ Wed 10. Sep 2008 17:01 ]
Post subject: 

Það er ekki sama hvaða kassar fara á M50......

Author:  BMW_Owner [ Wed 10. Sep 2008 17:53 ]
Post subject: 

jújú það skiptir engu hvaða kassi fer á þetta kíttaðu þetta bara eða búðu til 2 cm milliplötu til að þetta fitti :lol:






þetta væri ekki svona mikið vesen ef þetta væri 350 :roll:

Author:  gunnar [ Wed 10. Sep 2008 17:56 ]
Post subject: 

BMW_Owner wrote:
jújú það skiptir engu hvaða kassi fer á þetta kíttaðu þetta bara eða búðu til 2 cm milliplötu til að þetta fitti :lol:






þetta væri ekki svona mikið vesen ef þetta væri 350 :roll:


Enda 350 bara fyrir traktora og hestvagna :lol:

Author:  BMW_Owner [ Wed 10. Sep 2008 18:02 ]
Post subject: 

haha 8)

Author:  Dóri- [ Wed 10. Sep 2008 18:56 ]
Post subject: 

Ég lenti í veseni með kúplingsgaffalinn þegar ég var að setja kassa við m50! prófaðu að taka gamla Getrag gaffalinn og bera hann við ZF gaffalinn, kannski ekki neinn geðveikur munur EN það gæti verið einhver.

Hefðir örugglega getað notað getrag 240 úr e30 en það er getrag 250 í E36 örugglega svipaður skítur

Ég notaði kassa úr 318i m40 við m50 mótorinn hjá mér, eini munurinn er að 4 og 5 eru með öðruvísi hlutfall, já og kúplingsgaffalinn er öðruvísi.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/