bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Raki í e46 touring
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=31765
Page 1 of 1

Author:  bjornod [ Tue 09. Sep 2008 19:48 ]
Post subject:  Raki í e46 touring

Sælir

Var að komast að því að Navigation tölvan er ónýt hjá mér vegna raka. Þegar ég gróf mig að henni þá var pollur í kringum hana í vinstri hliðinni afturí.

Kannast e-r við þetta vandamál og þá hvaðan rakinn kemur. Þetta varð einnig til þess að boddýtölvan steiktist, en hún er staðsett bakvið hanskahólfið. (Á nú samt eftir að sannreyna að hún sé alveg ónýt)

P.s mig vantar navigationtölvuna/DVD spilaran þar sem það stjórnar stóra skjánum.

Author:  Alpina [ Tue 09. Sep 2008 19:54 ]
Post subject: 

. óó´

vont eitthvað

Author:  bjornod [ Tue 09. Sep 2008 20:15 ]
Post subject:  Lekinn fundinn

Vatnið kemst inn þar sem rafmagnið fer úr boddýi upp í hlerann. Mæli með að allir touring eigendur tékki á þessu.

BO


p.s Prufaði að tengja tölvuna eftir þurrkun, en það kom bara þessi fíni logi :(

Author:  bjornod [ Fri 12. Sep 2008 21:27 ]
Post subject:  Re: Lekinn fundinn

Sökum ótal áskorana, þá verður öll sagan að koma fram hér!!

Rakin kemur sennilegast inn hjá loftnetsstubbnum aftast, svo endilega verið vakandi fyrir því.

P.s kominn með eldri gerðina af DVD tölvu og kemur þá allt annað prógram fram á skjánum, en það er gú nokk.

bjornod wrote:
Vatnið kemst inn þar sem rafmagnið fer úr boddýi upp í hlerann. Mæli með að allir touring eigendur tékki á þessu.

BO


p.s Prufaði að tengja tölvuna eftir þurrkun, en það kom bara þessi fíni logi :(

Author:  ValliFudd [ Sat 13. Sep 2008 12:34 ]
Post subject: 

Það var stundum bleyta í gólfinu vinstra megin afturí hjá mér.. En mér fannst það samt koma frá hurðinni.. Samt alls ekki víst.. Þurfti oft að skafa að innan á morgnana.. brrr.. Svo þetta er greinilega eitthvað sem menn þurfa að spá aðeins í..

Það var 330i touring 28.12.00

Author:  Danni [ Sat 13. Sep 2008 13:33 ]
Post subject: 

Þetta er klárlega eitthvað sem allir E46 Touring eigendur ættu að fylgjast með!

Þegar ég átti E46 Touring (330d, facelit) þá var enginn leki. Var reyndar ekki loftnet á þakinu.

Author:  Berteh [ Sat 13. Sep 2008 13:53 ]
Post subject: 

Loftnetið er fyrir tv/nav gaurinn

Author:  JonHrafn [ Sat 13. Sep 2008 18:02 ]
Post subject: 

Eruði að tala um barkan sem sést þegar maður opnar glerið á skottinu?

Author:  ///MR HUNG [ Sun 14. Sep 2008 22:24 ]
Post subject: 

Danni wrote:
Þetta er klárlega eitthvað sem allir E46 Touring eigendur ættu að fylgjast með!

Þegar ég átti E46 Touring (330d, facelit) þá var enginn leki. Var reyndar ekki loftnet á þakinu.
Það hefur reyndar komið högg á loftnetið hjá honum þannig að það gapti smá að framan og þar lak inn.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/