bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Bráðvantar aðstoð með skitamix - ABS / Viðvörunarljósa tengt
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=31730
Page 1 of 1

Author:  JOGA [ Mon 08. Sep 2008 16:41 ]
Post subject:  Bráðvantar aðstoð með skitamix - ABS / Viðvörunarljósa tengt

Sælt veri fólkið,

Ég er búinn að koma mér í smá vandræði. Þegar ég keypti Hr. E36 328i Sport þá var í honum viðvörunarljós vegna ABS. Eigandinn sagðist hafa skipt um hægra megin að aftan og vildi meina að það væri þá líklegast hinn sem var kappútt.

Ég skipti um hinn (v. aftan) i sumar en þetta lagaðist ekki. Ég lét því lesa af bílnum nýlega og kom þar fram að hægra megin að aftan var ekki að virka. Ég tók þetta í sundur í dag og sé að skynjarinn er nýr en mig grunar að hjólið á "hubinum" sé ekki lagi. Þ.e. það sem skynjarinn notar til að "telja" hraðann á hjólinu.

Vandamálið:
Ég þarf að fara með bílinn í skoðun á miðvikudagsmorgun. Til að skipta um þetta hjól þarf ég að taka allt í sundur, öxul af, nýja legu o.s.frv. og ég treysti mér ekki til þess að ná því á morgun því mér vantar líka nokkur verkfæri og varahlutina.

Spurningin:
Get ég einhvernveginn tekið ABS-ið og spólvarnarljósið úr sambandi og losnað við viðvörunarljósin í mælaborðinu? Veit þetta er skítamix, en mig langar að fá skoðun á bílinn og redda mér svo góðum varahlutum á réttu verði til að gera þetta vel í rólegheitum.

Veit hvar ABS relay-ið er en þori varla að rífa það bara út + ég efast um að mælaborðsljósin fari úr við það.

Segið mér ykkar hugmyndir.

Author:  Einarsss [ Mon 08. Sep 2008 16:52 ]
Post subject: 

ekki hugmynd um hvort þetta virki eins á e36 og e30 ... en það logaði altaf abs ljósið hjá mér ... tók abs tölvuna úr sambandi og þá hvarf ljósið

Author:  Geirinn [ Mon 08. Sep 2008 19:04 ]
Post subject: 

Þarf þetta að vera í lagi fyrir skoðun ?

Author:  Jónas Þór [ Mon 08. Sep 2008 19:26 ]
Post subject: 

abs ljósið hefur logað í mínum bíl síðan ég man eftir honum og absið er svo sannarlega ekki til staðar og ekkert hefur verið sett út á þetta í skoðunum.

Author:  JOGA [ Mon 08. Sep 2008 19:32 ]
Post subject: 

Geirinn wrote:
Þarf þetta að vera í lagi fyrir skoðun ?

Ég er úti í UK og skv. mínum upplýsingum er sett út á þetta í skoðun :(

Ég reyndi áðan að taka þetta úr sambandi en ljósin loga enn.
Þeir eru strangari á þessu hér og skoðuninn rennur úr á miðvikudaginn. Veit ekki alveg hvað ég á að gera ...

Author:  Einarsss [ Mon 08. Sep 2008 19:33 ]
Post subject: 

er möst að fara uppá dag í skoðun?

Author:  Tommi Camaro [ Mon 08. Sep 2008 19:44 ]
Post subject: 

uff ljót að segja en 2 skrúfur mælaborðið úr og peran úr . málið dautt

Author:  JOGA [ Mon 08. Sep 2008 20:11 ]
Post subject: 

Tommi Camaro wrote:
uff ljót að segja en 2 skrúfur mælaborðið úr og peran úr . málið dautt

Já ég ætlaði að gera það en til þess þarf ég að taka Airbagið/stýrið úr skv. Bentley og þá kemur SRS ljósið á sem þarf að resetta með tölvu :lol: :roll:

Ég held þeir séu mjög strangir á dagsetningunni. Ætla að athuga samt hvort að það er í lagi að fara fram yfir.

Hefur einhver hér skipt um "wheel hub" þ.e. stykkið sem hjólalegan og öxullinn fer inn í. Þarf ég einhver spes verkfæri til að ná öxlinum úr/setja í og hvað með leguna?

Hvað tók það viðkomandi ca. langan tíma?

Author:  birkire [ Mon 08. Sep 2008 20:14 ]
Post subject: 

JOGA wrote:

Geturðu ekki forðast SRS ljósið með því að taka rafgeyminn úr sambandi áður en þú ferð að fikta í þessu ?
Hef allavega alltaf gert það fiktandi með airbag stýrið í e34 og alrei fengið airbag ljós.

Author:  JOGA [ Tue 09. Sep 2008 11:49 ]
Post subject: 

Tommi Camaro wrote:
uff ljót að segja en 2 skrúfur mælaborðið úr og peran úr . málið dautt

Ég gerði þetta áðan. Nú er það bara að sjá hvort ég komist upp með þetta :lol:

(Þetta verður samt lagað almennilega á næstunni :wink: )

Author:  finnbogi [ Tue 09. Sep 2008 14:29 ]
Post subject: 

þú sleppur við að fá airbag ljósið ef þú tekur rafgeymirinn alverg úr sambandi í 10 mín

:wink:

þeir setja ekki út á ABS ljós hér heima því þetta er ekki staðarbúnaður í öllum bílum

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/