bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Vantar uppls. Drif swap https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=31706 |
Page 1 of 1 |
Author: | Axel Jóhann [ Sun 07. Sep 2008 20:11 ] |
Post subject: | Vantar uppls. Drif swap |
Þarf að skipta um drif í 525i, en það virðast vera öðruvísi festingar á drifinu í 518 og 520 bílnum mínum. Ég var að spá eru þetta þá ekki stóru og litlu drifin og í hvaða bílum breytast þau? þeas, við 520 og 525 eða ? Og líka, er þetta ekki nema kannski 2-3 tíma verk fyrir vanann bílabrasara á bílalyftu með öll verkfæri sem maður þarf? Bara svona athuga áður en ég byrja svo ég geti gefið mér tíma í þetta eftir vinnu einhverntímann. Kv. Axel Jóhann. |
Author: | jon mar [ Sun 07. Sep 2008 20:15 ] |
Post subject: | |
svosem ekkert stórmál að gera svona, en passaðu þig. Drifið er fokk þung, þú vilt ekki fá það á þig.... Mundu að taka hraðamælirinn úr sambandi áður en þú skrúfar laust. |
Author: | Axel Jóhann [ Sun 07. Sep 2008 20:19 ] |
Post subject: | |
jon mar wrote: svosem ekkert stórmál að gera svona, en passaðu þig.
Drifið er fokk þung, þú vilt ekki fá það á þig.... Mundu að taka hraðamælirinn úr sambandi áður en þú skrúfar laust. Jájá, gerði svosem ráð fyrir því, verð bara með gírkassatjakk niðrí vinnu. ![]() |
Author: | ömmudriver [ Sun 07. Sep 2008 21:26 ] |
Post subject: | |
2-3 tíma verk ![]() Ég og Danni vorum nú ekki einu sinni klukkutíma að skipta um drif í OZ hér í fyrra, vorum eitthvern hálftíma að þessu með bílinn á gryfju og ég var gírkassatjakkurinn ![]() |
Author: | Dóri- [ Sun 07. Sep 2008 22:32 ] |
Post subject: | |
ömmudriver wrote: 2-3 tíma verk
![]() Ég og Danni vorum nú ekki einu sinni klukkutíma að skipta um drif í OZ hér í fyrra, vorum eitthvern hálftíma að þessu með bílinn á gryfju og ég var gírkassatjakkurinn ![]() Já ef að allt gengur smurt þá er þetta ekkert mál og ég hef verið mjög snöggur að þessu, svo stundum þá vill þetta allt vera fast og asnalegt og þá getur tíminn alveg flogið frá manni. |
Author: | Lindemann [ Sun 07. Sep 2008 22:54 ] |
Post subject: | |
ég held alveg örugglega að þú eigir að vera með minna drifið...........530 er allavega með minna drifið en 535 er með stærra. |
Author: | Mazi! [ Sun 07. Sep 2008 23:22 ] |
Post subject: | |
ég nota nú bara venjulega bíltjakk til að lyfta drifinu niður og upp ég hef oftast gert þetta á grifju þegar þú ert búinn að losa öxla og drifskapt frá, ferðu bara að losa alla stóru boltana sem halda drifinu, og þá set ég bara plötu á grifjuna og tjakk á plötuna og tjakka það svo niður og tjakka nýja drifið á réttann stað |
Author: | Angelic0- [ Sun 07. Sep 2008 23:29 ] |
Post subject: | |
30mín er svona c.a. tíminn hjá mér... (orðinn vanur)... en það er gott að ákvarða svona 2 tíma þar sem að ýmislegt getur farið úrskeiðis... Áttu eitthvað drif með betra hlutfalli en 4.10 ![]() |
Author: | Axel Jóhann [ Mon 08. Sep 2008 00:59 ] |
Post subject: | |
Angelic0- wrote: 30mín er svona c.a. tíminn hjá mér... (orðinn vanur)...
en það er gott að ákvarða svona 2 tíma þar sem að ýmislegt getur farið úrskeiðis... Áttu eitthvað drif með betra hlutfalli en 4.10 ![]() Held ég eigi eitt 4.27 hlutfall handa þér. ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |