bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Húdd opnast ekki á e36
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=31670
Page 1 of 2

Author:  BirkirB [ Fri 05. Sep 2008 17:08 ]
Post subject:  Húdd opnast ekki á e36

Ég var semsagt að skipta um dæmið sem festir húddið niðri á mínum e36 coupe...ég stillti græjið af þar til ég gat lokað....
svo lokaði ég bara hressilega og ætlaði að opna húddið aftur en þá skeði e-ð skrýtið þegar ég togaði í handfangið inní bíl og húddið lyftist ekkert...og er núna fast alveg niðri

Er ég ekki innilega fucked ef vírinn er slitinn eða losnaður, sem ég samt efast um...
Er einhver með góð ráð? :oops: :roll:

Author:  Alpina [ Fri 05. Sep 2008 18:29 ]
Post subject: 

FEIN

Author:  Lindemann [ Fri 05. Sep 2008 18:51 ]
Post subject: 

er ekki bara spenna á læsingunni svo að þú nærð ekki að opna þessvegna?

Ef svo er, þá er sennilega nóg að fá einhvern til að ýta húddinu niður á meðan þú togar í handfangið.

Ef barkinn er slitinn getur það verið vesen að opna, spurning hvort að það sé hægt að ná grillinu úr með lokað húddið?

Author:  BirkirB [ Fri 05. Sep 2008 19:32 ]
Post subject: 

Ég skil ekki Alpina...FEIN? segir maður ekki FEIL?

Lindemann:
ég fór á verkstæði og einhver kall sem hafði ekki tíma hjálpaði mér smá og við reyndum að ýta því niður og toga á alla vegu....líklega það sem þú sagðir, spenna á læsingunni...
Næ nýrunum ekki úr nema brjóta hugsanlega festingarnar sem halda þeim saman.

Djöfull getur maður verið vitaus #-o ](*,)

Author:  Alpina [ Fri 05. Sep 2008 22:02 ]
Post subject: 

Jarðsprengja wrote:
Ég skil ekki Alpina...FEIN? segir maður ekki FEIL?

Lindemann:
ég fór á verkstæði og einhver kall sem hafði ekki tíma hjálpaði mér smá og við reyndum að ýta því niður og toga á alla vegu....líklega það sem þú sagðir, spenna á læsingunni...
Næ nýrunum ekki úr nema brjóta hugsanlega festingarnar sem halda þeim saman.

Djöfull getur maður verið vitaus #-o ](*,)


nei,,, FEIN verkfæri hjámiðjuskerari...

kannski full brútal :wink:

Author:  Bjarki [ Fri 05. Sep 2008 23:01 ]
Post subject: 

Hef lent í þessu.
Það dugði að gefa á þetta smá smurningu, það þarf þó ekki að vera í þessu tilfelli.

Author:  grettir [ Sat 06. Sep 2008 09:17 ]
Post subject: 

Það er örugglega spenna á lásnum svo hann nær ekki að "poppa" húddinu upp. Fáðu einhvern til að halda í handfangið inni í bíl á meðan þú jagast aðeins á húddinu þá ætti það að opnast.

Author:  BirkirB [ Sat 06. Sep 2008 22:52 ]
Post subject: 

sköll!
ég er búinn að reyna þetta og ekkert gerist...reyndar virðist það vera laust bílstjóramegin en alveg pikkfast farþegamegin... ég gæti með engu móti komið smurningu þarna á milli.

Gæti vírinn á milli læsingarpinnanna hafa slitnað (er kannski enginn vír á milli?) og þessvegna er allt fast farþegamegin?

helvítis ég :!: alveg að koma olíuskipti og svo ætlaði ég að skipta um startara...

Author:  Djofullinn [ Sat 06. Sep 2008 23:00 ]
Post subject: 

Búinn að prófa að láta einhvern toga í gaurinn inní bíl á meðan þú reynir að toga húddið upp?
Ég hef lent í þessu á 3 E39 bílum og þetta virkaði alltaf. Svipað system og á E36

Author:  BirkirB [ Sat 06. Sep 2008 23:05 ]
Post subject: 

Já ég hélt í gaurinn :lol:
kannski þarf ég bara að vera aðeins verklegri og rífa draslið upp...
fkn rugl að þurfa að stilla þetta drasl af...:evil:

Author:  xripton [ Sun 14. Sep 2008 07:59 ]
Post subject: 

kennir þér að nota ekki hluti úr bílnum mínum hvað þá stela þeim :evil:

Author:  Steini B [ Sun 14. Sep 2008 08:06 ]
Post subject: 

xripton wrote:
kennir þér að nota ekki hluti úr bílnum mínum hvað þá stela þeim :evil:

WTF??? :-s

Author:  Tommi Camaro [ Sun 14. Sep 2008 08:49 ]
Post subject: 

vesen , þú verður senilega að rífa nýra úr,þú hefur ekki stillt pinnann nógu vel og þess vegna hefur hann skoraðst fastur í læsingunni.þetta er mjög common

Author:  xripton [ Sun 14. Sep 2008 09:27 ]
Post subject: 

hann og mymojo fóru í ránsferð í bílinn minn :bawl: rupluðu og rændu eins og þeir fengu borgað fyrir, brutu rúður ofl

Author:  ValliB [ Sun 14. Sep 2008 14:06 ]
Post subject: 

Steini B wrote:
xripton wrote:
kennir þér að nota ekki hluti úr bílnum mínum hvað þá stela þeim :evil:

WTF??? :-s


herðu þú lætur þetta hljóma eins og við séum einhverjir glæpamenn,,:o

Stukkum uppá gám í sorpbrennslustöðinni og tókum nokkra hluti úr honum því það átti hvort sem er að pressa hann.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/