Page 1 of 1
Stuðhljóð í bremsum, titringur

Posted:
Mon 25. Aug 2008 22:07
by Brútus
Þegar að ég er að keyra og bremsa þá heyrist svona stuðhljóð stundum.
Þetta gerist mjög sjaldan en þó allavega einusinni í bílferð.
Þetta lýsir sér þannig að þegar að ég er að keyra og stíg bremsuna niður þá heyrist frá henni hljóð eins og heyrist þegar að sími er að titra.
Svona titringshljóð og ég finn titringinn upp í löpp.
Þó að ég taki löppina af bremsunni þá heldur hljóðið áfram en varir þó aldrei lengur en svona um það bil 3 sec. Hljóðið einsleitt og jafnlangt.
Ég varð fyrst var við þetta í rigningu núna fyrir 3 dögum.
ABS ljósið logar hjá mér öðruhverju líka. Bara þegar að því virðist líða þannig.

Posted:
Mon 25. Aug 2008 23:03
by Angelic0-
búnir bremsuklossar


Posted:
Mon 25. Aug 2008 23:15
by ömmudriver
Já eða kannski verptir diskar ?

Posted:
Mon 25. Aug 2008 23:16
by Brútus
Þakka skjótt svar.
Fer í það mál að láta skipta um þá. En hérna er þetta hljóð að vara mig því að klossarnir séu að klárast eða er ég að skemma bílinn bara með að bremsa ?
Hvað þýðir verptir diskar ?

Posted:
Mon 25. Aug 2008 23:25
by Lindemann
verptir diskar eru skakkir diskar.
en mér finnst þessi lýsing hjá þér einhvernvegin hljóma eins og abs'ið sé að kicka inn, þó ég geti svosem ekki dæmt um það gegnum netið. En ég hef lent í því á e34 að absið sé að koma inn þó hann sé ekki að læsa bremsunum. Held það sé bara eitthvað í abs stjórnboxinu eða eitthvað, allavega á hann að slökkva á kerfinu ef skynjarar eru ónýtir.

Posted:
Mon 25. Aug 2008 23:27
by Danni
Þetta stuð hljóð er akkurat það sem ég heyrði reglulega áður en ABS skynjari að framan gafst upp að framan í gamla 540-num mínum. Fann líka fyrir því í bremsupetalnum.
Stuttu seinna datt út hraðamælirinn, ABS-ið virkaði ekki, spólvörnin virkaði ekki og spólvarnar og bremsuljósið löguðu stöðugt gul.
Í styttri orðum: Ef ég skil þína bilanalýsingu rétt, þá giska ég á ABS skynjara.

Posted:
Mon 25. Aug 2008 23:50
by Brútus
Já . .Þetta blessaða abs ljós logar bara öðru hverju.
Tilviljunarkennt en þó stundum tengt veðrinu.
Enn annars þá ætla ég held ég bara að fara með bílinn í TB og láta þá bara fara í gegn um þetta abs mál að framan.
Þakka kærlega góð svör.
Stundum líður mér eins og að það sé reimt í bílnum hjá mér þetta er svo skrítið allt saman.

Posted:
Tue 26. Aug 2008 07:09
by Danni
Það var einmitt þannig á 540, þegar þetta var komið áleiðis á að klikka alveg, þá datt allt út af og til bæði ljósin loguðu þegar það var rigning eða snjór úti (ss. nav-ið náði að blotna giska ég). Svo gafst þetta bara alveg upp og þá skipti ég um skynjara og hann varð as good as new


Posted:
Tue 26. Aug 2008 13:57
by Misdo
þetta kemur fyrir hjá me´r stundum líka enn ég er með nýja bremsudiska undir mínum og klossar eru mjög nýlegir enn þessi titringur kemur alltaf þegar ég er að keyra mjög hægt t.d niður laugarveginn
enn ef ég íti ekki á bremsuna þegar titringurinn kemur þau kveiknar á abs ljósinu enn ef ég íti á hana þegar titringurinn er þá kemur það ekki
skrítið
enn láttu vita hvað þeir í tb segja því þetta er pott þétt sama vandamál og ég er með

Posted:
Mon 08. Sep 2008 20:45
by Misdo
veistu hvað var að þessu hjá þér ?