daginn félagar,
Ég er í basli með bílinn minn, hann gengur mjög illa og stundum ekki neitt auk þess sem hann á það til að sprengja með sæmilegum látum. Ég fékk strákana hjá TB til að líta á gripinn og þá grunar að þetta gæti verið tölvan (hitinn er t.d. fastur í 105 gráðum í tölvunni).
Hafið þið lennt í einhverju þessu líku og ekki vill svo til að einhver eigi tölvu til að lána mér í nokkrar mín til að láta reyna á þessa kenningu (svissa um tölvu og tékka hvort þetta lagast). Tölvan er númer 0 261 200 402 Bosch.
Bíllinn er z3 en vélin kom út 325i '92.
takk fyrir
