bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

E34 gengur kjánalega
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=31142
Page 1 of 1

Author:  Saxi [ Wed 06. Aug 2008 16:25 ]
Post subject:  E34 gengur kjánalega

Í fyrsta lagi:
Eftir meira en 10 km akstur flöktir hægagangurinn. Mis mikið þó, stundum upp og niður um 200 snúninga en stundum er hann verri, allt upp í 1000 snúninga flökt þannig að nánast deyr á honum. Svo versnar þetta alltaf þegar ég kveiki á miðstöðinni, hala niður rúðu eða legg á hann. Einnig finnst mér hann verri eftir miklar inngjafir.

Í annan stað:
Eftir nokkurn akstur c.a 150 km fór bíllinn að ganga hrillilega í akstri og í tvígang hef ég þurft að stoppa og láta hann hvíla sig aðeins. Þetta lýsir sér eins og ég taki fótinn af bensíngjöfinni og trampi hana svo í gólfið (þó svo ég geri ekkert slíkt). Þetta hef ég náð að plástra með því að taka mínusinn af rafgeyminum í korter og "endurræsa". Þetta hefur gerst síðustu skipti sem ég hef keyrt svona mikið.

Fæ engar villur upp í mælaborð.

Það sem ég er búinn að reyna:
Hélt að hægagangsrofinn (ICV) væri drullugur, tók soggreinina af, þreif icv, skipti um allar mögulegar og ómögulegar vacumslöngur, skipti um soggreinapakkningar, pakkningu fyrir inngjafarspjaldið og o hring í öndun á ventlaloki (smitaði með honum).

Mældi gildin á TPS og þau voru mjög nálægt því að vera rétt.

Any ideas?
Mr. pirraður

Author:  saemi [ Wed 06. Aug 2008 18:22 ]
Post subject: 

loftflæðimælir eða tps skynjari.

Author:  Saxi [ Wed 06. Aug 2008 23:10 ]
Post subject: 

Takk Sæmi

Hér með lýsi ég eftir ofangreindu sem einhver á á lausu og ég mætti prufa.

[-o<

Author:  saemi [ Thu 07. Aug 2008 10:17 ]
Post subject: 

prufaðu að taka loftflæðimælinn úr sambandi, sjáðu hvort bíllinn er betri þannig. Ef svo er þá eru sterkar líkur á að þetta sé hann.

Author:  Saxi [ Fri 08. Aug 2008 12:55 ]
Post subject: 

saemi wrote:
prufaðu að taka loftflæðimælinn úr sambandi, sjáðu hvort bíllinn er betri þannig. Ef svo er þá eru sterkar líkur á að þetta sé hann.


Prufaði að keyra dágóðan spotta þangað til hann fór að hiksta. Tók mælinn úr sambandi og við það tók bíllinn smá andköf (svipað og þegar hann byrjar á látunum) og gekk aðeins skár. Tók af stað og viðbragðið var aftur komið og bíllinn mun betri (mælirinn enn aftengdur). Síðan þegar ég stoppaði aftur fór hann aftur í sama gamla farið og hægagangurinn flökti.

Hafði á tilfinningunni að það skipti nánast ekki máli hvort mælirinn væri tengdur eður ei.

Tími til að kaupa nýjan loftflæðimæli?

Kveðja

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/