Page 1 of 4

BMW E30 325ix - framdrifið ???

PostPosted: Mon 20. Oct 2003 15:48
by O.Johnson
Hvað gerist nákvæmlega ef framdrifi brotnar í keyrslu ???

Er hægt að taka millikassan úr sambandi og gera bílinn afturhjóladrifinn ???

PostPosted: Mon 20. Oct 2003 16:56
by oskard
getur tekið drifskaftið sem fer úr transfare caseinuog í framdrifið úr og tekið framöxlanaúr þannig verður bílinn afturhjóladrifinn.

PostPosted: Mon 20. Oct 2003 22:19
by Schulii
hmmmm..... :?

PostPosted: Mon 20. Oct 2003 23:33
by O.Johnson
Schulii_730i wrote:hmmmm..... :?

Ekkert hmmmm. Þetta er grafalvarlegt mál :?

PostPosted: Tue 21. Oct 2003 00:33
by Stefan325i
varstu að brjóta ??????????????????

PostPosted: Tue 21. Oct 2003 00:39
by Haffi
AÐ SPÓLA Í HRINGI Á 4WD ER DÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖMMMMM :)

PostPosted: Tue 21. Oct 2003 10:57
by oskard
hvað segiru eru sögurnar sannar um að þú hafir verið að spóla í
hringi og brotið framdrifið svona rosalega að það hafi drasl skotist
uppí block og stoppað vélina ?

PostPosted: Tue 21. Oct 2003 11:01
by gstuning
Það er sko leiðinlegt ef vélin er farin, holy shit sko bara

Vonandi ekki samt auðvitað,

Hvað kom uppá

PostPosted: Tue 21. Oct 2003 11:39
by arnib
Crap.. :(

PostPosted: Tue 21. Oct 2003 13:15
by O.Johnson
Á fimmtudaginn fékk vinur minn að prófa bílinn og við fórum upp á planið
hjá húsgagnahöllinni. Hann kendi mér fult af trixum sem gaman (var) að gera
T.d að vera í fyrsta gír og í 4000 snúningum, keyra í stórn hring, ýta á kúplinguna,
bensínið í botn, sleppa kúplingunni, og um leið og hann byrjar að spóla, skipta
strax í annan og bensínið í botn. VVÁÁÁÁÁÁ hvað hann spólar mikið og slætar.
Voða gaman. Síðan á sunnudaginn þá var maður á leiðinni í bíó og kom við í
Húsgagnshöllinni, blaut úti. Langaði aðeins að sýna félaganum sem er mikill anti-bmw
maður, hvers konar tæki þetta væri. Tók tvö powerslæt og ætlaði að fara síðan.
að fara að koma mér í bíóið. Var hættur öllu spóli og var á leiðinni út af planinnu
og var bara í þriðja á svona 40 km/h, beyji smá og kling ping klang, og vélinn þagnar.
Mín hugmynd er að annað framhjólið hafi bara verið í spóli en hitt ekki, en við það
verður gífurlegt álag á mismunadrifið. Það hitnar mjög mikið og þegar það
kólnar getur það gróið fast og verður eins og 100% læst drif, sem gerir það að
verkum að þegar beygt er þá myndast svo mikið álag á drifið að það einfaldlega
splundrast.

PostPosted: Tue 21. Oct 2003 13:23
by O.Johnson
Bílnum verður EKKI fleygt eða seldur í varahluti. Það mun vera gert við hann,
hvað sem það kostar og honum aldrei nokkurtíma misþyrmt svona aftur.
Ekki búast samt við að sjá hann fjótlega aftur á götunni. Ég er í skóla og atvinnulaus
eins og er, og kemst ekki í neina aðstöðu til að gera við þetta.


PS: Skúli, þegar ég er búinn að gera það sem ég ætla að gera við hann,
þá geturðu verið stoltur og sagt við félagana "einu sinni átti ég þennan bíl"

PostPosted: Tue 21. Oct 2003 13:26
by saemi
O.Johnson wrote:T.d að vera í fyrsta gír og í 4000 snúningum, keyra í stórn hring, ýta á kúplinguna,
bensínið í botn, sleppa kúplingunni, og um leið og hann byrjar að spóla, skipta
strax í annan og bensínið í botn. VVÁÁÁÁÁÁ hvað hann spólar mikið og slætar.


Úfff hvað þetta hljómar ekki sniðugt á fjórhjóladrifnum bíl. Hvað þá afturdrifnum (þarf ekki að tala um framdrifna :wink: ).

En þú hefur alla mína samúð með bílnum

Sæmi

PostPosted: Tue 21. Oct 2003 13:34
by GHR
Ég fatta ekki fólk sem misþyrmir bílum svona...... :roll:
ÞAð er kannski ekki sátt við hversu lítið bíllin bilar og bæta úr því :?:

Ég veit allavega að ef ég tek virkilega á bílnum þá fæ ég bara nánast samviskubit og keyri bílinn eftir það eins og kelling :wink: Og þegar ég meina að taka vel á bílnum þá myndi ég hins vegar aldrei gera þetta að ofangreindu :idea:

PostPosted: Tue 21. Oct 2003 13:36
by O.Johnson
Ég er sko búinn að læra mína lexíu þó að hún muni vera mér dýrkeypt.
Samt spyr ég, hvernig er með þessar imprezur, er ekki mikið verið að
stúda drifum í þeim ???

PostPosted: Tue 21. Oct 2003 13:39
by GHR
Ég held að gírkassinn gefi sig á undan í flestum tilfellum :wink:
En í þeim ertu líka kominn með meira afl :wink:

En ég heyrði líka að vélin hafi bilað eitthvað..... Is that true :?: