bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Lituð afturljós
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=30738
Page 1 of 1

Author:  jens [ Tue 15. Jul 2008 13:23 ]
Post subject:  Lituð afturljós

Hver er reynsla manna að vera með lituð afturljós þegar farið er í skoðun, er það ólöglegt.

1. Lituð rauð ( nema bakkljós ).
2. Lituð svört.

Author:  Einarsss [ Tue 15. Jul 2008 13:25 ]
Post subject: 

Hef farið gegnum skoðun með dökk afturljós, kallinn sleppti mér í gegn því þetta var ekki kolsvart og lýsti réttum lit í gegnum glæruna

Author:  jens [ Tue 15. Jul 2008 13:28 ]
Post subject: 

Samt spurnig hvort þetta sé ólöglegt og fari bara eftir því á hverjum maður lendir.

Author:  Höfuðpaurinn [ Tue 15. Jul 2008 15:49 ]
Post subject: 

þetta fer líka mikið eftir því hversu mikið þú litar ljósin, er búinn að eiga nokkra bíla með dekktum afturljósum og aldrei neitt verið sett út á það.

en ég get ekki séð að það sé hægt að hengja nokkurn mann fyrir að hafa stefnuljósin rauð, það er nú mikið af usa bílum sem eru þannig.

Author:  íbbi_ [ Tue 15. Jul 2008 17:20 ]
Post subject: 

þetta er ólöglegt puntkur, bæði rautt og svart, það er bara yfirhöfuð bannað að breyta útliti ljóskersins

Author:  Axel Jóhann [ Tue 15. Jul 2008 18:51 ]
Post subject: 

Ég fór í skoðun með þennan um daginn og hann setti útá ljósin útaf því þau eru svört. Fékk samt skoðun, bara eina lagfæringu, hann sagði mér að nudda bara svertuna af með white sprit.

Image

Author:  Grétar Þór [ Thu 24. Jul 2008 21:55 ]
Post subject: 

sma að forvitnast hvernig er þetta gert?

Author:  bjornf [ Fri 25. Jul 2008 01:21 ]
Post subject: 

Grétar Þór wrote:
sma að forvitnast hvernig er þetta gert?


Er það ekki bara spreybrúsi úr bílanaust (N1 Verslun) ?? :?

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/