bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

loft í bremsum
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=30721
Page 1 of 3

Author:  ellipjakkur [ Mon 14. Jul 2008 18:54 ]
Post subject:  loft í bremsum

ég er með e30 og er búinn að vera að reyna að laga bremsurnar það virðist eins og það sé loft á kerfinu en samt er ég búinn að lofttæma allar dælur en petalinn sígur enn þá í gólfið

eitthver sem gæti vitað eitthvað ?

Author:  Alpina [ Mon 14. Jul 2008 18:55 ]
Post subject: 

Hvernig loft-tæmdirðu ???

Author:  Steinieini [ Mon 14. Jul 2008 19:28 ]
Post subject: 

Þetta tók ótrúlega mörg skipti hjá mér, örugglega hátt í 10 á hvert horn

byrjar lengst frá húddi, aftan hægra megin og fikrar þig svo nær

Author:  Alpina [ Mon 14. Jul 2008 19:35 ]
Post subject: 

Þetta er varla gerlegt nema 2 séu að þessu,,,

NEMA að þú sért með vaccum græjur

Author:  ellipjakkur [ Mon 14. Jul 2008 20:07 ]
Post subject: 

já það er bara einn að pumpa og hinn að opna tappann

Author:  IngóJP [ Mon 14. Jul 2008 20:14 ]
Post subject: 

ertu búinn að setja nýjan bremsuvökva á kerfið?

Keypti bíl af BogL og bremsurnar létu svona BogL endurnýjuðu diska klossa og allt það ennþá lét þetta svona. Svo prufaði ég að skipta um bremsuvökva þá lagaðist þetta.

Svo getur verið að það sé gat á bremsuröri hjá þér ættir samt að sjá það strax

Author:  ellipjakkur [ Mon 14. Jul 2008 21:30 ]
Post subject: 

IngóJP wrote:
ertu búinn að setja nýjan bremsuvökva á kerfið?

Keypti bíl af BogL og bremsurnar létu svona BogL endurnýjuðu diska klossa og allt það ennþá lét þetta svona. Svo prufaði ég að skipta um bremsuvökva þá lagaðist þetta.

Svo getur verið að það sé gat á bremsuröri hjá þér ættir samt að sjá það strax

ég er bara búinn að vera að bæta bremsuvökva inn á kerfið en ekki endurnýja allan

reyndar er ég búinn að setja heilann brúsa á hann s.s.(300ml)

Author:  gstuning [ Mon 14. Jul 2008 22:06 ]
Post subject: 

Nærðu að mynda einhvern þrýsting í kerfinu.

Prufaðu að filla á og opna bara ventil að aftann, nýr bremsuvökva er svo þunnur að hann mun vilja leka í gegn. prufaðu það.

Author:  ellipjakkur [ Mon 14. Jul 2008 22:32 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
Nærðu að mynda einhvern þrýsting í kerfinu.

Prufaðu að filla á og opna bara ventil að aftann, nýr bremsuvökva er svo þunnur að hann mun vilja leka í gegn. prufaðu það.

já ég næ að mynda smá þrýsting en hann fer mjög fljótt og ef ég kveiki á bílnum dettur petalinn beint i gólfið og bremsar enn verr

en ég prufa að opna ventil á morgun

Author:  gstuning [ Mon 14. Jul 2008 22:37 ]
Post subject: 

ellipjakkur wrote:
gstuning wrote:
Nærðu að mynda einhvern þrýsting í kerfinu.

Prufaðu að filla á og opna bara ventil að aftann, nýr bremsuvökva er svo þunnur að hann mun vilja leka í gegn. prufaðu það.

já ég næ að mynda smá þrýsting en hann fer mjög fljótt og ef ég kveiki á bílnum dettur petalinn beint i gólfið og bremsar enn verr

en ég prufa að opna ventil á morgun

þá ertu að ná að blæða enn þarft bara að blæða mikið mikið meira.
ekki setja hann í gang fyrr enn það er búið að blæða allt kerfið.

Ef hann dettur í gólfið eftir það þá er masterinn dauður.

Author:  ellipjakkur [ Mon 14. Jul 2008 22:49 ]

hvað meinaru með að blæða og hvernig fæ ég hann til að blæða meira ?

Author:  gstuning [ Mon 14. Jul 2008 22:51 ]
Post subject: 

blæða = bleed,
tappa loft af kerfinu.

Heldur áfram að reyna tappa loftið af. kemur eitthvað úr dælunum??

Það er mjög erfitt að tappa loftið af ef það er alveg gal tómt kerfið

Author:  Lindemann [ Mon 14. Jul 2008 22:54 ]
Post subject: 

blæða er þegar þú ert að hleypa loftinu/vökvanum út um loftnipplana á bremsudælunum. Það þarf að gera það þangað til maður er viss um að það séu engar loftbólur eftir í vökvanum. það er best að hafa glæra slöngu uppá nipplinum á meðan svo þú sjáir hvort það eru loftbólur eða ekki. Bara passa að pumpa pedalann og standa svo á honum á meðan vökvanum er hleypt út og ekki fara af honum fyrr en búið er að loka fyrir....pumpa svo aftur upp og hleypa aftur út. Þetta þarf að gera töluvert oft.
Ef að þú ert búinn að lofttæma vel allsstaðar og pedalinn fer ennþá í gólfið, þá er eins og gunni segir sennilega höfuðdælan(master cylinder) ónýt.

Author:  ellipjakkur [ Mon 14. Jul 2008 23:05 ]
Post subject: 

já ég er búinn að vera að pumpa þá alla og er búinn að gera það þangað til að engar loftbólur eru eftir

það er vökvi inn á öllu kerfinu

en ég næ samt ekki þrýsting almennilega nema þegar ég pumpa á milljón og þá sígur petallinn rólega i gólfið samt og ef ég set i gang dettur hann beint i gólfið og meðan hann er i gangi get eg eiginlega ekki fengið neinn þrýsting á kerfið

Author:  gstuning [ Mon 14. Jul 2008 23:09 ]
Post subject: 

Ef þú stígur snöggt á hann og viðheldur eins miklum þrýsting og þú sjálfur getur gert án þess að vélin sé í gangi helst hann þá??

Svo slakkaru af pedallanum rólega og þá fellur hann niður á meðan þú slakar??

Það hljómar eins og það sé loft enn í masternum eða hann er bilaður.
þ.e gúmmíið nær að halda þrýsting undir miklu pedal álagi enn ekki litlu

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/