bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Vandamál með obc í 1989 735i ... Vantar að "unlocka&quo
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=30454
Page 1 of 1

Author:  sveri [ Mon 30. Jun 2008 22:58 ]
Post subject:  Vandamál með obc í 1989 735i ... Vantar að "unlocka&quo

Sælir.. var að kaupa mer þessa fínu fínu bifreið sem er 1989 e32 735i.
Er búinn að standa númeralaus í 2 ár inni í skemmu með aftengdann og nú ert allt á skaðræðis þýsku...

Búinn að lesa mig til á netinu og það sem ég er að gera er ekki að funkera fyrir einhverja ástæðu :roll:

Amk er allt á þýsku, bæði mælaborð og tölvan. Þarf að setja in dag og mánuð (kann ekki) unlocka tölvuna (kann ekki) og setja nýtt tungumál (kann ekki heldur)
Veit að þetta hefur eitthvað með Function 11 að gera.. sem er locked :P

Getur einhver aðstoðað mig ?

Author:  birkire [ Mon 30. Jun 2008 23:23 ]
Post subject: 

Mig minnir að maður breyti um tungumál á bílnum með því að setja lykilinn í skránna, svissa á fyrstu stöðu og halda inni
check control takkanum(hægri takkinn á mælaborðinu) í 10 sek.

Tjekkaðu svo á þessari síðu undir -Information og - OBC Tips & Tricks
http://bmwe32.masscom.net/ - Möst að skoða fyrir E32 eigendur.

Author:  sveri [ Mon 30. Jun 2008 23:40 ]
Post subject: 

búinn að setja tölvuna á free mode (á að þurfa að setja inn eh kóða en það kemur ekki upp) svo er function 11 til að breita language.. er fast á de... hvaða takka á ég að nota til þess að breita því ?

Author:  elli [ Mon 30. Jun 2008 23:49 ]
Post subject: 

birkire wrote:
Mig minnir að maður breyti um tungumál á bílnum með því að setja lykilinn í skránna, svissa á fyrstu stöðu og halda inni
check control takkanum(hægri takkinn á mælaborðinu) í 10 sek.

Tjekkaðu svo á þessari síðu undir -Information og - OBC Tips & Tricks
http://bmwe32.masscom.net/ - Möst að skoða fyrir E32 eigendur.
Þetta á að virka ... eins og lýsingin hjá Birki segir um. Ég held að þú þurfir ekki að "unlock-a" tölvunni til að geta breytt um tungumál.
Googlaðu "OBC functions" þá kemur mikið í ljós..

http://www.E38.org/e32 þessi skilar líka miklu annars er masscom djövul góð.

Enjoy 8)

Author:  sveri [ Mon 30. Jun 2008 23:55 ]
Post subject: 

búinn að fá þetta upp... get bara ekki breitt tungumálinu.. Er það möguleiki að það se ekki hægt í öllum bílunum?

Author:  elli [ Tue 01. Jul 2008 00:03 ]
Post subject: 

sveri wrote:
búinn að fá þetta upp... get bara ekki breitt tungumálinu.. Er það möguleiki að það se ekki hægt í öllum bílunum?

Ertu viss um að þú haldir takkanum í mælaborðinu nægilega lengi niðri? Þetta er glettilega langur tími áður en eitthvað gerist.

Já þetta er hægt í öllum

Author:  sveri [ Tue 01. Jul 2008 00:10 ]
Post subject: 

hægri takkinn í mælaborðinu sjálfu... undir rpm mælinum. Rúm mínuta með svissað á 1 smell... ekkert gerist.. rúm mínuta með 2 smelli svissað á... ekkert gerist...

Author:  elli [ Tue 01. Jul 2008 00:16 ]
Post subject: 

sveri wrote:
hægri takkinn í mælaborðinu sjálfu... undir rpm mælinum. Rúm mínuta með svissað á 1 smell... ekkert gerist.. rúm mínuta með 2 smelli svissað á... ekkert gerist...

Sorry vinur er það ekki pos 2
Quote:
With the ignition key in Position II (radio and OBC on), pressing this button for about 20 seconds gives the next language. Releasing and pressing again cycles thought the languages (ENGLISH-US, ENGLISH-UK, FRENCH, ITALIANO, ESPANGOL, DEUTCH) with wrap around option.
Note: Not all languages from function 11 can be selected and there are some interactions between setting the language this way and using the OBC function 11. Combination of a DEUTCH language with a LA-J setting in the OBC gives a English-US nationalisation.

http://home.iae.nl/users/bts/obc.htm

Prófaðu að láta vaða á þetta...

Og það er hægri takkinn samkvæmt þessari síðu...

Líf og fjör

Author:  sveri [ Tue 01. Jul 2008 00:28 ]
Post subject: 

gerist ekki baun í riðguðum satans bala! þetta er bara plága.. er þá næsta vers að læra þysku eða ???

Author:  birkire [ Tue 01. Jul 2008 00:28 ]
Post subject: 

Tekur örugglega minni tíma heldur en að reyna að fatta E32 :lol:

Author:  elli [ Tue 01. Jul 2008 00:31 ]
Post subject: 

Þetta eru \:D/ yndislegir bílar

Author:  sveri [ Tue 01. Jul 2008 00:36 ]
Post subject: 

svo virkar ekki flautan.. getur það verið tölvutengt? (veit það er hægt að stilla hana eh í tölvunni) ?

Author:  elli [ Tue 01. Jul 2008 08:48 ]
Post subject: 

Mitt fyrsta hugboð væri að það sé ekki OBC það er hægt að breyta tóninum í henni í OBC (þó ég hafi ekki prófað það)

Getur svo líka skoðað þessar:
http://www.bimmerboard.com ameríska
http://www.7er.com þýska :lol:

Author:  ömmudriver [ Tue 01. Jul 2008 11:39 ]
Post subject: 

Hmm, það er til önnur aðferð til þessa að setja tölvuna í E32/E34 yfir á ensku en ég vistaði hana inn í gömlu tölvuna mína og nú er hún F.U.B.A.R. :?

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/