bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Gangtruflanir í 320d https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=30364 |
Page 1 of 1 |
Author: | 318is [ Wed 25. Jun 2008 23:13 ] |
Post subject: | Gangtruflanir í 320d |
Sælir félagar. Þannig er mál við vexti að ég var að prufa 320d 2003 módel og kunni ég mjög vel við hann fyrir utan smá gangtruflanir. Þær lýsa sér þannig að þegar maður er á jafnri inngjöf í kringum 1.500 rpm og niður í 1.000 rpm þá er eins og vélin sé alltaf að slá á móti, það er eins og ég sé alltaf að slá af olíugjöfinni. Gerist þetta með ca. sekúndu millibili og því er eins og bíllinn hiksti. Vona að þið náið hvert ég er að fara. Það ber ekkert á þessu á inngjöf eða á jafnri inngjöf yfir 1.600 rpm. Bílinn er ekinn 96 þúsund km og er með 100% þjónustubók. Hefur einhver lent í svipuðu með sinn disel BMW? |
Author: | Djofullinn [ Wed 25. Jun 2008 23:16 ] |
Post subject: | |
Spíss kannski |
Author: | 318is [ Wed 25. Jun 2008 23:28 ] |
Post subject: | |
Eru spíssar svona yfirleitt það eina sem eru að angra þessar díselvélar? Ég er búinn að lesa gömlu þræðina sem eru um vandamál burgerkings t.d. og þetta lýsir sér ekkert eins og þar er talað um. Líklega það fyrsta sem maður getur gert er að láta lesa af bílnum og athuga hvort eitthvað komi fram þar. |
Author: | Lindemann [ Wed 25. Jun 2008 23:30 ] |
Post subject: | |
spíssar eru alveg líklegir, en best væri að láta lesa af honum og athuga hvort eitthvað komi fram. Annars er bara að skipta um hráolíusíu og lekamæla spíssana. |
Author: | Einarsss [ Wed 25. Jun 2008 23:41 ] |
Post subject: | |
spurning um að skella svona hreinsi efni útí díselinn og taka svo góðan rúnt 50-100km |
Author: | 318is [ Thu 26. Jun 2008 13:26 ] |
Post subject: | |
Já spurning að skella svona hreinsiefni í díselinn áður en farið er í eitthvað stórvægilegt. Mælið þið með einhverju sérstöku hreinsiefni? Samkvæmt eigandanum var bíllinn tengdur við tölvuna hjá B&L fyrir 2 mánuðum og þá var ekkert athugavert í gangi. |
Author: | thisman [ Thu 26. Jun 2008 15:20 ] |
Post subject: | |
Ég lenti einmitt í spíssamáli með minn 320d þegar ég keypti hann og var einmitt ráðlagt að prófa hreinsiefni. Það hafði ekkert að segja í mínu tilfelli og endaði þetta í viðgerð á spíss, dæmi sem hefði kostað 100+k hjá B&L en var eitthvað lægra hjá TB. Fékk það síðan í gegn að fyrri eigandi greiddi allt dæmið en eilífir rúntar og tilraunir til að lagfæra féllu náttúrlega á mig auk kostnaðar við hreinsiefni og bilanagreiningu. Ótrúlega pirrandi að standa í svona veseni með bíl sem maður er nýbúinn að kaupa. Ef þú ert ekki þegar búinn að kaupa bílinn myndi ég ráðleggja þér að láta núverandi eiganda kippa þessu í liðinn fyrst. Þó svo að ekkert komi fram í aflestri á tölvu er ekki þar með sagt að ítarleg bilanagreining hjá B&L finni ekki vandamálið. Þannig var það með minn - tölvan í bílnum var þvílíkt ánægð og það kom ekkert fram við routine og jafnvel ítarlegt tékk. Þeim tókst þó að pinpointa vandamálið með réttum græjum engu að síður. Hitt er svo annað að ég skil vel að fólk eigi erfitt með að bíða ef því langar í einhvern bíl en ég hefði þó betur gert það og sparað mér mikinn pirring og vesen. Að þessu sögðu þá er víst best að taka fram að síðan þetta gerðist, hátt í ár síðan, þá hefur vélin ekki slegið feilpúst og hreyfir ekki við olíu þrátt fyrir að vera ekin 137 þús kílómetra. Þetta er alveg fínasta vél miðað við eyðslu og kemur sér sérlega vel núna þegar díselolían er í hærri kantinum. Ég fjárfesti upphaflega í bílnum sem tímabundinni lausn en ég mun halda honum áfram sökum mikillar ánægju með hann. |
Author: | 318is [ Thu 26. Jun 2008 15:29 ] |
Post subject: | |
thisman wrote: Ég lenti einmitt í spíssamáli með minn 320d þegar ég keypti hann og var einmitt ráðlagt að prófa hreinsiefni. Það hafði ekkert að segja í mínu tilfelli og endaði þetta í viðgerð á spíss, dæmi sem hefði kostað 100+k hjá B&L en var eitthvað lægra hjá TB. Fékk það síðan í gegn að fyrri eigandi greiddi allt dæmið en eilífir rúntar og tilraunir til að lagfæra féllu náttúrlega á mig auk kostnaðar við hreinsiefni og bilanagreiningu. Ótrúlega pirrandi að standa í svona veseni með bíl sem maður er nýbúinn að kaupa.
Ef þú ert ekki þegar búinn að kaupa bílinn myndi ég ráðleggja þér að láta núverandi eiganda kippa þessu í liðinn fyrst. Þó svo að ekkert komi fram í aflestri á tölvu er ekki þar með sagt að ítarleg bilanagreining hjá B&L finni ekki vandamálið. Þannig var það með minn - tölvan í bílnum var þvílíkt ánægð og það kom ekkert fram við routine og jafnvel ítarlegt tékk. Þeim tókst þó að pinpointa vandamálið með réttum græjum engu að síður. Hitt er svo annað að ég skil vel að fólk eigi erfitt með að bíða ef því langar í einhvern bíl en ég hefði þó betur gert það og sparað mér mikinn pirring og vesen. Að þessu sögðu þá er víst best að taka fram að síðan þetta gerðist, hátt í ár síðan, þá hefur vélin ekki slegið feilpúst og hreyfir ekki við olíu þrátt fyrir að vera ekin 137 þús kílómetra. Þetta er alveg fínasta vél miðað við eyðslu og kemur sér sérlega vel núna þegar díselolían er í hærri kantinum. Ég fjárfesti upphaflega í bílnum sem tímabundinni lausn en ég mun halda honum áfram sökum mikillar ánægju með hann. Ég var einmitt búinn að lesa þráðinn um þitt vandamál. Vona að það þurfi ekki að skipta um spíssa til þess að komast yfir þetta vandamál. Takk fyrir gott svar. Ef það þarf að skipta um spíssa í mínu tilfelli þá er þetta greinilegt vandamál með þessar vélar. |
Author: | JonHrafn [ Thu 26. Jun 2008 18:05 ] |
Post subject: | |
Þetta er nákvæmlega það sem var að angra minn bíl. Vélin var hreinsuð í bogl, egr valve var sérstaklega óhreinn. Vélaheilinn endurforritaður. Mjúkur gangur eftir það. Og hann var keyrður 100k ![]() |
Author: | Bjarki [ Thu 26. Jun 2008 19:17 ] |
Post subject: | |
Spíssar það fyrsta sem mér datt í hug eins og mörgum öðrum. Það væri vont ef BMW vél væri farin að hreyfa mikið við olíu í aðeins 137tkm. Spíssar eru BARA dýrir var um 60þús pr stykki og þeir eru 6 => 360þús (hrynja þó sjaldnast allir í einu) þ.e. svipað 2100l af bensíni kosta... ef diesel bíll eyðir 5l minna þá er maður 42þkm að spara sér upp í það / ná því til baka sökum minni eyðslu (ekki t.t.t. að olía er dýrari en bensín) Stundum fara diesel-olíudælurnar og svo Turbínur og það er dýrt líka 50þús hef ég heyrt + í/úr. Það miðast þá við að hægt sé að taka hana upp..... Ég fíla diesel bíla en menn verða að vera upplýstir um þær gríðarlegu upphæðir sem farið geta í viðhald. |
Author: | 318is [ Fri 27. Jun 2008 09:38 ] |
Post subject: | |
JonHrafn wrote: Þetta er nákvæmlega það sem var að angra minn bíl. Vélin var hreinsuð í bogl, egr valve var sérstaklega óhreinn. Vélaheilinn endurforritaður. Mjúkur gangur eftir það.
Og hann var keyrður 100k ![]() Ég fór upp í B&L í gær og ég fékk einn af verkstæðinu (Bjarka) til þess að taka hring á bílnum. Hann stórefaðist um að þetta væri eitthvað tengt spíssum. Hann talaði um að það fyrsta sem mætti gera væri að endurforrita bæði vélartölvuna og skiptinguna. Hann hélt að vélin og skiptingin væru eitthvað að misskilja hvora aðra og því væri þetta að ske. Talaði hann jafnframt um það að hann hafi séð þetta einu sinni áður og hann mundi ekki alveg niðurstöðuna úr því atviki. Ætla að vona að þessi endurforritun á tölvunum leysi vandamálið. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |