bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Bank og læti í e36
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=30288
Page 1 of 1

Author:  ValliB [ Sun 22. Jun 2008 23:34 ]
Post subject:  Bank og læti í e36

Var að dóla mér á tæpum 40 km hraða áðan í mínum e36 þegar ég heyrði bank og einhver óhljóð sem komu frá vinstra afturdekkinu. :?

Þetta lýsir sér þannig að þetta kemur þó ég sé ekki að fara í ójöfnur og var farið að heyrast nokkuð oft undir það síðasta. Og ég þvoði líka bílinn í dag og eftir að þetta bank kom þá kom þetta þykka lag af að mér sýnist vera einhversskonar ryð/ryk á felgurnar.

Pabbi talaði um að þetta væri eitthvað rugl með bremsubúnaðinn en ég fer með hann á verkstæði á morgun að láta tjékka á þessu. :oops:


Veit einhver hér hvað þetta gæti verið?

Author:  BirkirB [ Mon 23. Jun 2008 00:52 ]
Post subject: 

Kannski þarf að strekkja á handbremsudæminu??
Það kom svona bank hjá mér sem ágerðist eftir hraða og svo strekkti ég handbremsuna og það hefur ekki komið síðan.

Getur prófað að taka smá, 2 klikk?, í handbremsuna meðan þú ert á ferð og tékkað hvort bankið fer ekki

Author:  BMW_Owner [ Mon 23. Jun 2008 03:57 ]
Post subject: 

ha?
sko ef það er "rið"ryk á felgunum þínum þá er það líklega að hann liggi aðeins utaní bremsu þannig að það er eitthvað að bremsubúnaðinum,vittu Fyrst hvort að handbremsan sé að gera eitthvað s.s taki eitthvað í,ekki strekkja á henni nema að það gerist ekkert á því hjóli þegar að þú tekur í handbremsuna

og þetta bank þitt er örugglega spyrnupúði að aftan eða átakspúðinn fyrir mismunadrifið eða eiginlega hvað sem er en sjáðu hvað kemur úr þessu verkstæðis máli áður en þú ferð að rífa og tæta, :roll:

Author:  . [ Mon 23. Jun 2008 05:39 ]
Post subject: 

það kemur yfirleitt svona ryðryk ef að bremsurnar eru jarn i jarn

Author:  ValliB [ Mon 23. Jun 2008 17:03 ]
Post subject: 

búinn að komast af þessu. Bremsuklossinn farinn að rekast aðeins í en ekki komið í járn í járn. Hann er bara að skafa smá ryð núna

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/