Page 1 of 1

hitavesen á e30 (e23vél)335

PostPosted: Sat 07. Jun 2008 13:54
by Birgir Sig
bíllinn hitar sig ekki allmennilega þegar maður keyrir,, svo stoppar maður bílinn þá fer hann of hátt í hita,,, ég er með nýjan vatnslás.
Er þetta ekki líklegast spaðarnir í vatnsdælunni???

PostPosted: Sat 07. Jun 2008 15:30
by Axel Jóhann
Myndi allavega taka hana úr og skoða sem fyrst.

PostPosted: Sat 07. Jun 2008 16:47
by arnibjorn
Getur prófað að kaupa nýja vatnsdælu... Ég keypti eina á klink í N1 fyrir stuttu :o

En virkar rafmagnsviftan sem er í bílnum??

PostPosted: Sat 07. Jun 2008 17:19
by saemi
Þetta eru nú væntanlega ekki spaðarnir.

En hvers konar kæliviftu-kerfi ertu með? Rafmagns eða seigjukúplingu?

PostPosted: Sat 07. Jun 2008 17:40
by jon mar
ööööö var ekki kæliviftan enþá biluð þegar þú keyptir þennann af djöflinum? Var allavega rafmagns í þessum bíl og bilað síðast þegar ég grúskaði í húddinu með Matta.

Ef vatnsdælan er léleg (þá kannski spaðarnir ef það er plast) þá hitnar hann hvor sem þú ert á ferð eða ekki, eða hún lekur frammúr ef pakkdósin er farin í henni.

Ef vatnslásinn er lélegur þá hleypir það oft stöðugt í gegnum sig og því verður hann kaldari á ferð en í kyrrstöðu. Ef hann er lokaður ætti hann að ofhitna við allar aðstæður.


Ef kæliviftan er óvirk eða oem viftukúppling ónýt þá í flestum tilfellur er eðlilegur vinnsluhiti í keyrslu en ríkur upp í kyrrstöðu útaf því að það er ónóg kæling á vatnskassa.

Svo ef allt þetta er í lagi, þá er er mál að athuga með loft á kerfinu.

bmw

PostPosted: Sat 07. Jun 2008 19:56
by Birgir Sig
kæliviftan er komin í lag og allt í góðu með hana, en málið er sennilega dælan.
ætla að skoða það á morgun :d

PostPosted: Sat 07. Jun 2008 23:29
by Stefan325i
Gunni sagði mér að það þarf að tappa loftið af kerfinu almennilega áður enn þetta fer að virka, það er best að lyfta forðabúrinu vel hátt á meðan er verið
er að bæta á vatni.
Það má lítið útaf fara til að blæðing gangi ekki rétt upp.

PostPosted: Sun 08. Jun 2008 01:37
by Djofullinn
Ég er ennþá á því að það sé loft á kerfinu :)