Page 1 of 1
Bakkljós í BMW 316i

Posted:
Sat 11. Oct 2003 20:15
by BMW_Owner
Hvar finn ég blessaða Bakkljósskynjarann? ég er að velta því fyrir mér hvort ég þurfi að rífa allan gírkassan í sundur til að komast að þessu eða bara laust tengi.....? þetta lýsir sér svo:að þegar ég fer í Reverse þá kemur ekkert engin bakkljós eða neitt
allar ábendingar teknar....með fyrir fram þökk
Kv.BMW_Owner E.T

Posted:
Mon 13. Oct 2003 03:08
by flamatron
Þetta fór líka hjá mér, fór með hann á liftu, og félaginn minn skipti um þetta, á að vera ekkert mál.!

Posted:
Mon 13. Oct 2003 14:32
by Bjarki
Á e36 er þetta bara lítið stykki sem skrúfast inn í gírkassann undir bílnum. Tekur svona 10mín með því að lyfta upp skrúfa úr og í.

Posted:
Mon 13. Oct 2003 21:34
by BMW_Owner
Dem ég var að vonast að þetta væri bara lítill skynjari sem leyndist einhverstaðar á auðveldum stað ekki lyfta bílnum ég er nefnilega ekki með margar lyftur heima og svo líka er bíllinn ekki á númerum (það er ekkert að bílnum) þannig það getur verið smá mál að koma honum á verkstæði eða á einhverja lyftu......en við þessu er ekkert gera
Takk Samt......
Kv.BMW_Owner E.T
ekkert má

Posted:
Tue 14. Oct 2003 00:37
by Tommi Camaro
ekkert mál . getur reddað þessu með því að tjakka hann uppá á hlið og þá áttu að geta skriðið undir og skift um neman eða skoðað tengið

Posted:
Tue 14. Oct 2003 16:01
by BMW_Owner
en hvar finn ég þennan nema er hann við hliðina á gírkassanum og er þessi skynjari/nemi eitthvað dýr...ég meina erum við að tala um einhverja 5þúsundkalla???? ég þekkti einu sinni gaur sem átti BMW 750il 1988 og í honum fór einhver innflæðisskynjari en það er auðvitað ekki það sama en sá kostaði eitthvað mikið og að skipta um hann eitthvað um 50þús!!!! en þennan skynjara var líka óhugsandi að skipta um nema hjá þeim sem hafði aðstöðu fyrir þetta,og það vita nú flestir að þessar 5.0lítra vélar og kannski fleiri að þú kemur engu ofan í þetta þú verður að rífa eitt og eitt í sundur til að komast á botninn!!

Posted:
Tue 14. Oct 2003 16:56
by Bjarki
Þegar ég skipti um þetta þá hefði verið nóg að tjakka hann upp bílstjóramegin. Skynjarinn er semsagt bílstjóramegin á gírkassanum á 320i a.m.k. Þetta er mjög ódýrt um 1000kr hjá B&L og einstaklega auðvelt að skipta um þetta.

Posted:
Tue 14. Oct 2003 21:35
by iar
Tók myndir úr Bentley og Haynes E36 bókunum af þessu, vonandi hjálpar þetta eitthvað.
http://bmwkraftur.pjus.is/iar/myndir/

Posted:
Sun 19. Oct 2003 20:25
by BMW_Owner
Thanx þetta kemur örugglega allt að góðum notum...
Kv.BMW_Owner E.T
