bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Vantar hjálp: Skoðun?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=29646
Page 1 of 1

Author:  Axel Jóhann [ Thu 22. May 2008 02:44 ]
Post subject:  Vantar hjálp: Skoðun?

Jæja, núna þar sem bíllinn minn var með 07 skoðunarmiða þegar ég lagði númerin inn, þarf ég þá ekki að fara með hann BEINT í skoðun þegar ég sæki númerin?





Og svo annað, fæ ég 08 miða og þarf svo að fara aftur til að fá 09 eða get ég fengið 09 miða strax?

Author:  jon mar [ Thu 22. May 2008 06:46 ]
Post subject: 

hefur viku frest. Ættir að fá 09, en það veltur reyndar smávegis á síðasta staf í númeri hjá þér. Það er leyfilegt að fara í skoðun sex mánuðum áður en síðasti stafur segir til um.

Author:  E55FFFan [ Thu 22. May 2008 07:05 ]
Post subject:  Re: Vantar hjálp: Skoðun?

mundu bara að hafa tryggingarnar í lagi áður en þú ferð niður í frumherja

gætir þurft að borga tryggingarnar fyrirfram

Author:  Axel Jóhann [ Thu 22. May 2008 14:25 ]
Post subject: 

Það er ekkert mál með tryggingar, ég borga þær alltaf fyrirfram og ég á ennþá inni síðan ég lagði númerin inn.



En númerið á bílnum er TY-867 þannig ég ætti að sleppa með 09 miða. 8)

Author:  Angelic0- [ Thu 22. May 2008 16:10 ]
Post subject: 

færð 09....


hefur 10 daga :!:

Author:  jon mar [ Thu 22. May 2008 17:42 ]
Post subject: 

Angelic0- wrote:
færð 09....


hefur 10 daga :!:


Allt af þessu er þegar komið fram, og 10 dagar er rangt. Ég hef margoft þurft að fara í gegnum þetta ferli og það eru 7 dagar, ekki meira og ekki minna.

Author:  Svessi [ Fri 23. May 2008 17:01 ]
Post subject: 

Allt í lagi að bæta inni að ef númerin hafa verið klippt af bílnum vegna vanrækslu á að fara með bílinn í skoðun er ekki hægt að fá þau fyrr en búið að tryggja bílinn og fara með hann í gegnum skoðun, þá fyrst færðu númerin á bílinn.

Verður sjálfur að koma bílnum númerlausum niður á skoðunastöð þótt ekkert sé að bílnum.

Ef þú hefur sjálfur lagt númerin inn þá gilda reglurnar sem fyrr er búið að pósta í þessum þræði.

Author:  crashed [ Fri 23. May 2008 23:53 ]
Post subject: 

rangt svessi þó að það hefur verið klift af bílnum vegna þess að hann sé óskoðaður hefuru samt þessa 7 daga (mín reynsla) verður alltaf að ganga frá birfreiðargjöldum og trigingarnar verða alltaf að vera í lagi en þú borgar þær samt ekki í skoðunarstöðini

Author:  Axel Jóhann [ Sat 24. May 2008 00:06 ]
Post subject: 

Ég laggði númerin og já ég er búinn að borga tryggingar, og svo greiði ég bifreiðagjöldin þegar hann er kominn á númer. :)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/