Page 1 of 1

Vantar hjálp: Hægagangur í M20 og olídæla.

PostPosted: Fri 16. May 2008 02:37
by Axel Jóhann
Sælir strákar og stelpur.



Ég tók smá hring á 525i í dag og eins og margir vita þá er vélin í honum eða allt fyrir neðan hedd 87'' módel og búið að standa í svoldinn tíma ónotað(nokkur ár)

Og þegar bíllinn er kaldur þá vill hann oft drepa á sér en þegar hann er búinn að ganga í 5 mín þá er hann ok og helst í gangi, cirka 8-900rpm en samt þegar maður gefur snöggt inn þá dettur hann niður í svona 4-500 rpm og olíuljósið kemur á í 2 sec í mesta lagi og fer svo í eðlilegan snúning.



Ég var að spá hvort olídælan væri orðin svoldið stirð í blokkinni og jafnvel hægagangs skynjarinn(ICV? AFM? MAF?) (Eflaust orginal frá 1990) orðinn slappur og þyrfti að skipta út.


Fyrir utan þetta þá virkar hann mjög fínt, nema það að núna þegar ég set miðstöðina á 4 þá kemur óskaplegt ryk inní bílinn, gæti verið að elementið fyrir miðstöðina leki?


Bíllinn heldur þó eðlilegum hita og allt það.



Með von um góð svör, Axel Jóhann. :)

Re: Vantar hjálp: Hægagangur í M20 og olídæla.

PostPosted: Fri 16. May 2008 08:48
by saemi
Axel Jóhann wrote:Sælir strákar og stelpur.



Ég tók smá hring á 525i í dag og eins og margir vita þá er vélin í honum eða allt fyrir neðan hedd 87'' módel og búið að standa í svoldinn tíma ónotað(nokkur ár)

Og þegar bíllinn er kaldur þá vill hann oft drepa á sér en þegar hann er búinn að ganga í 5 mín þá er hann ok og helst í gangi, cirka 8-900rpm en samt þegar maður gefur snöggt inn þá dettur hann niður í svona 4-500 rpm og olíuljósið kemur á í 2 sec í mesta lagi og fer svo í eðlilegan snúning.



Ég var að spá hvort olídælan væri orðin svoldið stirð í blokkinni og jafnvel hægagangs skynjarinn(ICV? AFM? MAF?) (Eflaust orginal frá 1990) orðinn slappur og þyrfti að skipta út.


Fyrir utan þetta þá virkar hann mjög fínt, nema það að núna þegar ég set miðstöðina á 4 þá kemur óskaplegt ryk inní bílinn, gæti verið að elementið fyrir miðstöðina leki?


Bíllinn heldur þó eðlilegum hita og allt það.



Með von um góð svör, Axel Jóhann. :)


Þú getur gleymt því að olíudælan sé eitthvað stirð. Olíuljósið kemur bara á vegna þess að snúningurinn dettur niður og þá heldur hann ekki olíuþrýstingi.

Þetta er sennilega eitthvað tengt innspýtingunni, ICV eða AFM mögulega(það er ekki MAF í þessum bíl (þess utan getur ekki verið AFM og MAF í eina og sama bílnum).... ). Annars athuga vacuum slöngur.

Ef hitaelementið lekur kemur ekki ryk inn í bílinn. Það geta bara verið óhreinindi og það tengist ekkert leka á elementinu.

PostPosted: Fri 16. May 2008 09:15
by gstuning
þetta eru merki um slappann AFM.
þegar þú ýtir snöggt á gjöfina og sleppir þá er vélin sein að taka við því að mælirinn er lengi að hefja hreyfinguna, þegar þú sleppir svo þá er afmið enn vel opið og vélin fær of mikið bensín og kafnar næstum.

lausagangurinn er útaf icv, styrður þarf að smyrja með almennilegri smurningu.

OG þú ert nokkuð líklega með vacuum leka líka því að hann eykur bara þessi áhrif.

þyrftir að komast í vacuum mælir til að setja á FPR slönguna og sjá hvað er í gangi. ættir að vera í kringum -15InHg cirka.

Ég mældi með því um daginn að menn myndu mæla viðnámið í afminu til að sjá hvort að það panti samband á viðnámsbrautina. Það væri líka sniðugt að gera

PostPosted: Fri 16. May 2008 17:07
by Lindemann
það var nákvæmlega svona í mínum m30 þegar það var rifin hosan milli loftflæðiskynjara og throttle body.

PostPosted: Fri 16. May 2008 18:08
by Axel Jóhann
Okei, ég þakka kærlega fyrir þessi svör, þetta var akkúrat það sem ég var að leita eftir. Ég ætla prófa viðnámsmæla ICV og já það alveg örugglega vacum leki á hosunni milli soggreinar og loftflæðiskynjara.




Takk fyrir :D

PostPosted: Fri 16. May 2008 19:15
by gstuning
mældu AFMið ekki ICV

PostPosted: Fri 16. May 2008 19:27
by Axel Jóhann
gstuning wrote:mældu AFMið ekki ICV




Okei, bara til að vera viss, er það þá ekki skynjarinn í loftsíuboxinu?

PostPosted: Fri 16. May 2008 20:21
by Hlynzi
Þetta með miðstöðina er bara uppsafnað ryk inní stokkunum og fl.
Sniðugast kannski að rífa filterinn út, hreinsa eða kaupa nýjan og leyfa miðstöðinni að blása í einhvern tíma á mesta hraða, og kannski blása þrýstilofti inní stokkana.