Page 1 of 2

filmulím

PostPosted: Mon 28. Apr 2008 16:59
by Kwóti
þannig er mál með vexti að ég var stöðvaður um daignn og látinn rífa filmurnar úr sem voru í framrúðunum, en núna er feit límhúð eftir á glugganum og kemur ógeðslegt hljóð þegar rúðan er skrúfuð upp eða niður,
ég er búinn að prufa að ná þessu af með hreinsuðu bensíni, gluggaspreyi og sköfu en ekkert gengur.
öll hjálp vel þegin

PostPosted: Mon 28. Apr 2008 17:01
by Aron Andrew
Vó þeir voru ekki lengi að stoppa þig!

En þú ferð í byko og biður um bostik og svo berðu það á rúðuna, láttu hana alveg vera blauta af þessu og svo notaru glersköfu og skefur þetta af. gætir þurft að bleyta aftur upp í líminu nokkrum sinnum. :wink:

Reif filmurnar úr bíl um daginn og gerði það svona. Tekur smá tíma en ekkert mjög erfitt :)

PostPosted: Mon 28. Apr 2008 17:03
by FinnurKarls
notuðum ágætt efni í sumar þegar ég var að vinna í standsetningunni hjá bogl veit ekki hvað það heitir en berteh getur pottþétt sagt þér það, þetta virkaði fáránlega vel, en það var reyndar svona mjúkt lím sem maður tók veit ekki hvernig það virkar á þetta

PostPosted: Mon 28. Apr 2008 17:35
by Berteh
að taka svona filmulím er oftast nóg að nota bara vatn og mjúka sköfu síðan er hægt að nota sápuvatn líka ef þetta fer ekki með vatni, ooog ef það klikkar þá myndi ég nota tar and glue remover frá concept

PostPosted: Mon 28. Apr 2008 18:07
by arnibjorn
Aron Andrew wrote:Vó þeir voru ekki lengi að stoppa þig!

En þú ferð í byko og biður um bostik og svo berðu það á rúðuna, láttu hana alveg vera blauta af þessu og svo notaru glersköfu og skefur þetta af. gætir þurft að bleyta aftur upp í líminu nokkrum sinnum. :wink:

Reif filmurnar úr bíl um daginn og gerði það svona. Tekur smá tíma en ekkert mjög erfitt :)


Bostik er lím, hann vill bostik límleysi :D

Ekki viljum við að hann kaupi meira lím og fari að maka því á rúðuna :lol:

PostPosted: Mon 28. Apr 2008 18:17
by Jónki 320i ´84
Þetta er nú ekki flókið.
Settu bara sápuvatn í úðabrúsa, hafðu með þér gluggasköfu, úðaðu sápuvatninu á alla rúðuna og skafðu svo límið af með sköfunni.
Þetta á að ganga alveg eins og smurt, hef gert þetta yfir hundrað sinnum.

Ef þetta gengur ekki hjá þér þá mæli ég með rauðspritti, það virkar einna best.

PostPosted: Mon 28. Apr 2008 18:27
by lulex
acínton eða hva sem etta heitir sem tekur naglalakk af :P

PostPosted: Mon 28. Apr 2008 18:28
by Grétar Þór
svo ef þu nennir þessu ekki sjalfur þa getur farið með bilinn a filmuverkstæði og þeir taka þetta ut fyrir þig kostar kringum 3000kr kannski 4000 allavega hérna í keflavik

PostPosted: Mon 28. Apr 2008 18:37
by crashed
eða bara brjóta rúðurnar og seigja við pulsen að einhver fáviti hafi brotist inní bílinn hjá þér eða rústað rúðunum og þú færð nýjar á 6 þúsund
hehe

PostPosted: Mon 28. Apr 2008 20:15
by Kwóti
crashed wrote:eða bara brjóta rúðurnar og seigja við pulsen að einhver fáviti hafi brotist inní bílinn hjá þér eða rústað rúðunum og þú færð nýjar á 6 þúsund
hehe


hmmm :twisted:

PostPosted: Wed 30. Apr 2008 00:14
by Kwóti
ráðið frá jónka svínvirkaði, rann af bókstaflega.
þúsund þakkir

PostPosted: Wed 30. Apr 2008 07:26
by Alpina
Kwóti wrote:ráðið frá jónka svínvirkaði, rann af bókstaflega.
þúsund þakkir



8)

PostPosted: Wed 30. Apr 2008 09:33
by maxel
Þar sem þessi þráður er kinda búin verð ég að fá að off topica hann :P
Er ekki málið að safna þessu svona saman í DIY þráðinn? Allt þetta useful info sem poppar oft upp á spjallinu?

PostPosted: Thu 01. May 2008 04:17
by Jónki 320i ´84
Kwóti wrote:ráðið frá jónka svínvirkaði, rann af bókstaflega.
þúsund þakkir


Minnsta mál, gott að geta miðlað einhverju frá því að maður var að vinna í þessu :wink:

Re: filmulím

PostPosted: Thu 01. May 2008 04:46
by Brútus
Kwóti wrote:þannig er mál með vexti að ég var stöðvaður um daignn og látinn rífa filmurnar úr sem voru í framrúðunum,


Vá bögg.
Hefði lögreglan sjálf rifið þetta af ef að þú hefðir neytað ? Var löggan kammó með þetta " því miður kallinn minn" eða var það bara harkan og stælar ??