Page 1 of 1

bilaður BMW.....................

PostPosted: Sat 04. Oct 2003 09:40
by jon
þarf uppl. í sambandi við BMW 735i, árg. 85 sem eg er með. hann gefur ekki neista ut ur haspennukefli, ef einhver gæti vitað hvað þetta er endilega hringið i sima 696-3974., þvi va hvíslað að mer að þetta gæti verið einhver talva ef einhver a svona tölvu endilega hringið.

735i dauður

PostPosted: Sat 11. Oct 2003 19:11
by Þórður Helgason
Viltu ekki bara seljann, dauðan, þá þarftu ekki að hugsa meira um þetta?

PostPosted: Sat 11. Oct 2003 19:54
by saemi
Hihihih, jámmz.... ágætis uppástunga. En hann er nýbúinn að kaupa hann :)

Sæmi

HAHA

PostPosted: Sat 11. Oct 2003 20:31
by Tommi Camaro
Einn Tveir og Henda.
p.s. Er þetta ekki bíllinn sem átti að seljast á 400 þús ???

PostPosted: Sat 11. Oct 2003 21:18
by saemi
Það má nú ekki henda svona fínum bílum!

Frekar að henda þessu gamla ameríska rusli sem er á götunum :D

Sæmi

PostPosted: Sat 11. Oct 2003 21:20
by Haffi
múhhahaha SATT :twisted:

PostPosted: Sat 11. Oct 2003 23:36
by O.Johnson
saemi wrote:Það má nú ekki henda svona fínum bílum!

Frekar að henda þessu gamla ameríska rusli sem er á götunum :D

Sæmi



Flott skot :D

PostPosted: Sun 12. Oct 2003 01:40
by Schulii
gaman að vita það að ef maður póstar því á BMW SPJALLI á TÆKNILEGAR UMRÆÐUR að mann vantar hjálp með BMW-inn sinn að þá sé stungið uppá því að maður hendi bílnum eða selji hann -DAUÐANN-

..veit það ekki, kannski er ég svona all emotional bara!!

PostPosted: Sun 12. Oct 2003 03:39
by Alpina
Sammála síðasta ræðumanni

PostPosted: Sun 12. Oct 2003 10:15
by saemi
Hjartanlega sammála því að þetta sé óþarfi að setja inn svonalagað. En svona er bara lífið, það er ekki hægt að banna fólki að setja inn athugasemdir á meðan þær eru fyrir innan velsæmismörk.

Hinsvegar ætti að sjást á ummælunum eftir það að þetta er ekki skoðun Krafts-meðlima, heldur eitt stakt ummæli sem er nú alveg hægt að líta framhjá :?

Sæmi

PostPosted: Sun 12. Oct 2003 17:59
by 2002tii
Ég átti E28 528ia '82 í 8 ár, vatn/raki komst í tengi í kveikjumagnara sem var neðst og fremst í innra bretti hægra megin, þetta orsakaði "mjög" lélegan neista (á kerti var gulleitur neisti sem heyrðist ekki í, ætti að vera bláleitur og heyrast í honum) og Bimminn var mjög tregur í gang (hökti stundum í gang eftir mikið start). Rakinn þurkaður með hárblásara, tengið fyllt af feiti (t.d. vaselíni). Þetta leysti málið á mínum gamla "heittelskaða Bimma. Vona að þetta leysi þitt vandamál, en auðvitað kemur margt annað til greina.

Re: 735i dauður

PostPosted: Sat 08. Nov 2003 20:55
by Þórður Helgason
Þórður Helgason wrote:Viltu ekki bara seljann, dauðan, þá þarftu ekki að hugsa meira um þetta?


Ég var nú fyrst að sjá að ummæli mín um hann dauðan hafa farið fyrir brjóstið á einhverjum, og þykir mér það miður. Ég átti einfaldlega við að ég væri kannski til í að kaupa hann bilaðan.
Ég á tvo bræður hans, einn lífs, annan nær liðinn og sé eftir því að hafa ekki náð mér í svona vagna fyrr.

Ekki hvarflaði það að mér að henda ætti bílnum né gefast upp á honum, nema etv, núv. eigandi væri þreyttur og vildi selja fyrir hóflegt verð, enda um bilaðan bíl að ræða.

Ég biðst afsökunar á þessu orðalagi mínu í upphafi þráðarins.

Með kveðju.

PostPosted: Wed 12. Nov 2003 11:47
by saemi
Ég held að það hafi ekki verið að agnúast út í þetta innlegg þitt um að selja hann dauðan. Ég allavega tók það ekki sem neinu skoti.

Það var meira kommentið frá Tomma sem fór í fólkið :?

Sæmi