Page 1 of 1

Perustæði í ný afturljós

PostPosted: Tue 22. Apr 2008 18:12
by Boggi
Ég var að skipta út afturljósunum á bmw inum fyrir ný glær ljós, vandamálið er það að perustæðin virðast ekki passa úr orginal ljósunum.

Veit einhver hvort þetta séu einhver stöðluð perustæði sem hægt er að nálgast t.d. í N1 eða þarf að láta panta þetta í B&L?

PostPosted: Wed 23. Apr 2008 02:29
by Axel Jóhann
Eru þetta ekki bara illa gerð aftermarket sem þarf að láta passa saman?

PostPosted: Wed 23. Apr 2008 05:58
by Danni
Oftast þegar maður kaupir aftermarket ljós þá fylgja perustæðin með. En ég hef að vísu lent í því að kaupa afturljós frá TB og þar vantaði sum perustæðin. Þeir höfðu ss. tekið perustæðin úr óseldum ljósum og látið einhvern sem vantaði í sín fá.

Ég held alveg örugglega að ef þetta eru aftermarket ljós þá þarftu perustæði gerð fyrir þau, ekki orginal.