Sælir, ég er í stökustu vandræðum með sígarettu kveikjarann í bílnum mínum. Hann bara vill alls ekki virka og hefur ekki gert það síðan ég fékk bílinn. Mér dettur helst í hug að það sé bara farið öryggi, en ég bara finn ekki helv. öryggið og veit ekki hvað það heitir. Já ég er búinn að reyna google.
Svo fannst mér ipod adapterinn fitta eitthvað illa í kveikjarann, þá var eitthvað hvítt stykki inní kveikjaranum sem að leit út fyrir að styðja við dótið sem stungið er inn. Stykkið er svona hvítur langur hringur.
Getur einhver hjálpað og ráðlagt mér ?
Takk fyrir...
_________________ BMW E39 523
|