Page 1 of 1
735 e32 fer ekki í gang.

Posted:
Mon 10. Mar 2008 20:25
by Los Atlos
frændi minn er með 735 ia árg 1987 (gamli minn) sem fer ekki í gang, hann sagði að hann hafi bara verið að keira einhverstaðar og þá hafi bíllinn bara drepið á sér, hann hafi náð að koma honum í gang eftir einhvern smá tíma og komið sér heim, svo ætlaði hann á hann daginn eftir en þá fór hann ekki í gang.
Veit einhver hvað þetta getur verið?

Posted:
Mon 10. Mar 2008 20:52
by saemi
Þetta er engan vegin nógu góð lýsing!
Það getur verið ALLT að.......

Posted:
Mon 10. Mar 2008 21:14
by Lindemann
bensínlaus, ónýt bensíndæla, kveikja, rofnað jarðsamband, ónýtur ökumaður
nei segi svona......það er svo margt sem kemur til greina.

Posted:
Mon 10. Mar 2008 22:41
by Los Atlos
Já, við frændurnir vorum einmitt að vona að þetta væri bara bensíndælan eða eitthvað álíka einfalt. Ég var einmitt búinn að heira eitthvað óhljóð í einhverju þegar bíllinn var í lausagangi þegar ég átti hann, síðan hætti það hljóða bara alltí einu. Hann startar alveg eðlilega en eins og hann nái ekki bensíni

Posted:
Tue 11. Mar 2008 00:45
by saemi
Los Atlos wrote:Já, við frændurnir vorum einmitt að vona að þetta væri bara bensíndælan eða eitthvað álíka einfalt. Ég var einmitt búinn að heira eitthvað óhljóð í einhverju þegar bíllinn var í lausagangi þegar ég átti hann, síðan hætti það hljóða bara alltí einu. Hann startar alveg eðlilega en eins og hann nái ekki bensíni
Nær hann ekki bensíni?
Er enginn neisti?
Fær hann ekki loft?
Það er eitthvað af þessu sem er í ólagi. Kíktu á þetta og svo skulum við fara að ræða saman þegar það er komið svar við þessu.
Þangað til erum við algjörlega að skjóta út í bláinn.

Posted:
Tue 11. Mar 2008 18:47
by Los Atlos
Ókey, takk. ég segi frænda að þetta sé örugglega eitthvað af þessu.


Posted:
Tue 11. Mar 2008 19:05
by Lindemann
ég get lofað þér því að það er ALLTAF eitthvað af þessu þrennu sem Sæmi nefndi.......þá er bara að komast að því hvað það er og þá er hægt að giska á hver orsökin fyrir því getur verið.