bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Hugsanlega Alternator vesen
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=27892
Page 1 of 1

Author:  Siggihp [ Tue 04. Mar 2008 12:36 ]
Post subject:  Hugsanlega Alternator vesen

Komiði sæl

Þannig er mál með vexti að á laugardaginn, feidaði rafmagnið eiginlega af bílnum, sloknaði rólega á rafmagninu og ég rétt náði að leggja í almennilegt stæði.

Rafgeymirinn fór í hleðslu og var settur aftur í. Núna logar rafgeymisljósið þegar bíllinn er stopp, en hverfur hægt og rólega þegar ég legg af stað og eyk hraðan.

Er hugsanlegt að alternatorinn sé búinn að gefast upp eða er bíllinn að leiða út einhversstaðar eða hvað?

Ef alternatorinn er búinn að gefast upp, hvar fæ ég svoleiðis?

Rúðurnar detta úr brautunum, hvar fæ ég nýtt unit fyrir það?

Bremsuljósið er líka logandi, fer ég á verkstæði til að vita hvað þarf nýtt eða á ég að geta séð það eða bara vita það?

Og já, þetta er minn fyrsti bíll svo að ég er smá byrjandi :)

Author:  burgerking [ Tue 04. Mar 2008 14:17 ]
Post subject:  Re: Hugsanlega Alternator vesen

Siggihp wrote:
Komiði sæl

Þannig er mál með vexti að á laugardaginn, feidaði rafmagnið eiginlega af bílnum, sloknaði rólega á rafmagninu og ég rétt náði að leggja í almennilegt stæði.

Rafgeymirinn fór í hleðslu og var settur aftur í. Núna logar rafgeymisljósið þegar bíllinn er stopp, en hverfur hægt og rólega þegar ég legg af stað og eyk hraðan.

Er hugsanlegt að alternatorinn sé búinn að gefast upp eða er bíllinn að leiða út einhversstaðar eða hvað?

Ef alternatorinn er búinn að gefast upp, hvar fæ ég svoleiðis? Gæti verið útleiðsla, eeen ég hef smá reynslu af því í fyrri bíl og þetta hljómar frekar einsog altenatorinn, myndi checka hjá TB,BogL og jafnvel notaðan hjá BMW ehf í gbæ;)

Rúðurnar detta úr brautunum, hvar fæ ég nýtt unit fyrir það? Tækniþjónustu Bifreiða, BogL eða BMW ehf gbæ

Bremsuljósið er líka logandi, fer ég á verkstæði til að vita hvað þarf nýtt eða á ég að geta séð það eða bara vita það? Klossarnir búnir eða vantar bremsuvökva? (getur kíkt á forðabúrið í húddinu hvort það vanti vökva) annars líklega bara búnir klossar (það eru oft nemar á klossunum sem detta úr sambandi þegar klossarnir eru að verða búnir)

Og já, þetta er minn fyrsti bíll svo að ég er smá byrjandi :)


Og já please correct me if im worng ;)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/