Komiði sæl
Þannig er mál með vexti að á laugardaginn, feidaði rafmagnið eiginlega af bílnum, sloknaði rólega á rafmagninu og ég rétt náði að leggja í almennilegt stæði.
Rafgeymirinn fór í hleðslu og var settur aftur í. Núna logar rafgeymisljósið þegar bíllinn er stopp, en hverfur hægt og rólega þegar ég legg af stað og eyk hraðan.
Er hugsanlegt að alternatorinn sé búinn að gefast upp eða er bíllinn að leiða út einhversstaðar eða hvað?
Ef alternatorinn er búinn að gefast upp, hvar fæ ég svoleiðis?
Rúðurnar detta úr brautunum, hvar fæ ég nýtt unit fyrir það?
Bremsuljósið er líka logandi, fer ég á verkstæði til að vita hvað þarf nýtt eða á ég að geta séð það eða bara vita það?
Og já, þetta er minn fyrsti bíll svo að ég er smá byrjandi
